[ÖRFÍ]Meistarafyrirlestur í dag

Viggó Þór Marteinsson viggo at matis.is
Tue Jan 21 09:22:23 GMT 2014


Meistarafyrirlestur: Vibrio cholerae við strendur Íslands


Hvenær hefst þessi viðburður:

21. janúar 2014 - 15:15

Staðsetning viðburðar:

Askja<http://www.hi.is/askja>

Nánari staðsetning:

Stofa 130



Herdís Eva Hermundardóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í líffræði. Verkefnið ber heitið Vibrio cholerae við strendur Íslands.

Vibrio cholerae er baktería sem á heimkynni sín í sjó og vötnum, aðallega í hitabeltinu. Tvær sermisgerðir bakteríunnar, O1 og O139, valda kóleru, en þær innihalda kólerueitur sem veldur einkennum sjúkdómsins. Aðrar gerðir hennar valda stöku sárasýkingum og eyrnabólgum hjá strandgestum, og geta auk þess valdið skaða á smádýrum. Á Íslandi var leitað að V. cholerae í fyrsta skipti árið 2006, og fannst hún á stöðum þar sem heitt vatn rennur út í sjó frá útrásum hitaveitu eða heitum hverum og hitar upp umhverfið á litlu svæði tímabundið á fjöru.

Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja umhverfisskilyrði V. cholerae bakteríunnar hér við land á fjórum mismunandi stöðum, kanna útbreiðslu hennar svo og að meta mismunandi greiningaraðferðir. V. cholerae fannst alltaf í sjósýnum frá Ægissíðu í Reykjavík, Skarðshver á Vatnsnesi og Berserkseyri á Snæfellsnesi, hún ræktaðist frá mörgum tegundum stórsærra lífvera á þessum stöðum og nánast alltaf úr fjörusandi. Bakterían fannst í allt að átta km fjarlægð frá hver við Berserkeyri. V. cholerae fannst aldrei í sýnum sem tekin voru neðan við Reykjanesvirkjun, þar sem heitur fullsaltur jarðsjór rennur til sjávar í hrjóstrugt líflítið flæðarmál. Við vöktun V. cholerae á strandsvæðum er mælt með sértækri mögnun erfðaefnis eftir ræktun í auðgunaræti. Fjölbreytileiki stofna bakteríunnar er talsverður bæði innan staða og á milli staða, sem algengt er meðal umhverfisbaktería.

Niðurstöður benda til að V. cholerae hafi átt búsetu við volgrur í fjörum, jafnvel frá lokum ísaldar, háð streymi af volgu ferskvatni og lífvænlegu fjöruumhverfi.

Aðalleiðbeinandi verkefnisins er dr. Eva Benediktsdóttir, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild, og meðleiðbeinandi dr. Jörundur Svavarsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild.
Prófdómari er dr. Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir, vísindamaður á Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum.


<http://www.addthis.com/bookmark.php?v=250>

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20140121/30f41f49/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.jpg
Type: image/jpeg
Size: 53371 bytes
Desc: image001.jpg
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20140121/30f41f49/attachment-0001.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list