[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Ný lög um velferð dýra - hvaða breytingar hafa átt sér stað?
Birkir Þór Bragason
birkirbr at hi.is
Mon Feb 3 09:08:54 GMT 2014
_
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks. _
*
*
*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari: *Þóra Jóhanna Jónasdóttir*, dýralæknir gæludýra og
velferðar, Matvælastofnun.
Heiti erindis: *Ný lög um velferð dýra - hvaða breytingar hafa átt sér
stað?*
Erindið verður haldið *_fimmtudaginn 6. febrúar kl. 12:20_*, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Um síðastliðin áramót tóku gildi ný lög um dýravelferð, ásamt nýjum
lögum um búfjárhald. Eftirlit með lögunum hefur verið flutt frá
Umhverfisstofnun og sveitarfélögum til Matvælastofnunar (MAST). Þar með
er eftirlit með dýravelferð komið á einn stað sem gera á málsmeðferð
einfaldari og skilvirkari.
Nýju dýravelferðarlögin eru víðtækari og ítarlegri en fyrri lög um
dýravernd. Markmið nýju laganna er að stuðla að velferð dýra, það er að
segja að þau séu laus við vanlíðan, hungur, þorsta, ótta, þjáningu,
sársauka, meiðsli og sjúkdóma. Í nýju lögunum kemur fram að dýr séu
skyni gæddar verur og ná lögin nú til dýra sem áður hafa ekki fallið
undir lög um dýravernd, svo sem tífætlukrabba, smokkfiska og býflugna.
Einnig gilda lögin um fóstur sem náð hafa vissu þroskastigi.Markmið
laganna er enn fremur að dýr geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og
frekast er unnt. Einnig eru í lögunum mörg nýmæli eins og til dæmis að
dýr hafi rétt til að fá lækningu eða líkn, og að sveitarfélagi sé skylt
að sjá til þess að gripið sé til aðgerða ef um hálfvillt eða villt dýr
er að ræða. Þeim sem verður vart við að dýr sé sjúkt, sært, bjargarlaust
eða að aðbúnaður sé ekki fullnægjandi ber að tilkynna slíkt til
umráðarmanna eða lögreglu. Á www.mast.is er einnig hægt að senda inn
slíkar ábendingar undir nafni eða nafnlaust.Lögin fela í sér þá
breytingu fyrir gæludýraeigendur að einstaklingsmerkja skal hvert dýr,
en áður hefur slíkt verið háð ákvörðun sveitarfélaga.
Nýju lögin veita stofnuninni víðtækari heimildir við beitingu
þvingunarúrræða þegar brotið er gegn ákvæðum þeirra og verður heimilt að
beita dagsektum, stjórnvaldssektum eða stöðva starfsemi sé tilefni til
þess. MAST mun einnig verða heimilt að framkvæma vörslusviptingu, leggja
tímabundið bann við dýrahaldi eða fara fram á að dýraeigandi verði með
dómi sviptur heimild til að hafa dýr í umsjá sinni hafi hann gerst sekur
um stórfellt eða ítrekað brot á lögunum.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20140203/3af1761f/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20140203/3af1761f/attachment-0001.jpg
More information about the Gerlanet
mailing list