[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Greining á ritverkum Keldna 2004-2013.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Mon Dec 8 09:09:54 GMT 2014



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks._

*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Sigurður Ingvarsson**, *prófessor og forstöðumaður á Keldum.**

**

Heiti erindis:*Greining á ritverkum Keldna 2004-2013.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 11. desember kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Leit var framkvæmd í vefsetrum Web of Science - Thomson Reuters og 
Elsevier Scopus til að kanna hversu sýnilegar vísindagreinar Keldna eru. 
Leitin var takmörkuð við árin 2004-2013. Alls voru 197 Keldnagreinar í 
Thomson gagnagrunni og 201 í Scopus gagnagrunni á þessu árabili. Vitnað 
hefur verið í þessar 197 og 201 greinar 2789 og 2997 sinnum, að 
meðaltali 14,1 og 14,9 tilvitnanir í hverja grein. Hirsch-index mælist 
26 í Thomson gagnagrunni og 27 í Scopus gagnagrunni. Sú grein sem oftast 
var vitnað í fjallar um ónæmisfræði fiska. Web of Science vefsetrið 
flokkar Keldnagreinarnar í 33 svið og Scopus vefsetrið í 12 svið. 
Meðhöfundar að Keldnagreinunum eru frá 210 stofnunum og háskólum víðs 
vegar í heiminum, í sex heimsálfum og 31 landi. Vefsetursgreiningin á 
vísindagreinum Keldna endurspeglar árangursríkt vísindastarf, fjölbreytt 
fræðasvið við dýrasjúkdómarannsóknir og gefandi alþjóðlegt samstarf.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141208/4462c2be/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141208/4462c2be/attachment-0001.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list