[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Um sníkjudýr rjúpunnar.
Birkir Þór Bragason
birkirbr at hi.is
Mon Sep 23 09:11:18 GMT 2013
_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks. _
**
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:***Karl Skírnisson, **sníkjudýrafræðingur á Keldum*.**
Heiti erindis:*Um sníkjudýr rjúpunnar**.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 26. september kl. 12:20_, í
bókasafni Tilraunastöðvarinnar.
Árið 2006 hófust rannsóknir á heilbrigði rjúpunnar í samvinnu
sérfræðinga á Tilraunastöðinni á Keldum og á Náttúrufræðistofnun
Íslands. Síðan hafa árlega verið rannsakaðar 100 rjúpur sem skotnar hafa
verið í rannsóknarskyni í Þingeyjarsýslu í byrjun október ár hvert.
Sérfræðingar við fleiri stofnanir hafa bæst í hópinn eftir því sem árin
hafa liðið og nokkrir nemar við Háskóla Íslands, sem og við erlenda
háskóla, hafa tekið afmarkaða verkhluta sem námsverkefni. Í erindinu
verður fjallað um sníkjudýr íslensku rjúpunnar. Hér hafa þegar fundist
18 tegundir sníkjudýra og voru margar þeirra áður ókunnar í
vísindaheiminum. Tekin verða valin dæmi um breytingar á smittíðni
undanfarinna ára og farið verður í lífsferla og líffræði valinna tegunda.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130923/6e7b90c0/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130923/6e7b90c0/attachment-0001.jpg
More information about the Gerlanet
mailing list