[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi baktería

Birkir Þór Bragason birkirbr at hi.is
Mon Oct 7 09:25:37 GMT 2013



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks. _

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:***Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir, **líffræðingur á Keldum*.

**

Heiti erindis:***Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi baktería *-- 
/Staðan í mönnum og dýrum á Íslandi 2012/.

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 10. október kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Sýklalyfjanotkun er áhrifamesti þátturinn í vali og dreifingu 
sýklalyfjaónæmis, þótt sambandið geti verið flókið. Röng og/eða of mikil 
notkun sýklalyfja eykur hættu á að sýklalyfjaónæmar bakteríur komi fram 
og breiðist út. Forsenda markvissra aðgerða gegn óskynsamlegri 
sýklalyfjanotkun er að hafa góðar og áreiðanlegar upplýsingar um notkun 
sýklalyfja og þróun ónæmis gegn þeim.


Sóttvarnasvið hjá Embætti landlæknis heldur skrá með upplýsingum um 
notkun manna á sýklalyfjum. Undanfarin ár hefur verið tekin saman 
skýrsla um sýklalyfjanotkun hjá mönnum en í skýrslu fyrir árið 2012 var 
bætt við upplýsingum um sýklalyfjanotkun í dýrum og sýklalyfjaónæmi 
baktería í dýrum og mönnum. Í erindinu verður fjallað um helstu 
niðurstöður þeirrar skýrslu.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20131007/4600a736/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20131007/4600a736/attachment-0001.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list