[ÖRFÍ]Greinar, ritgerðir og Facebook
Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir
totarafnar at gmail.com
Mon Mar 25 09:15:34 GMT 2013
Kæru félagsmenn,
Á nýrri heimasíðu Örverufræðifélgs Íslands er nú að finna flipa á borða
efst á síðunni þar sem stendur *Birtingar. *Hugmyndin er að þar sé hægt að
setja inn hlekki á ritgerðir og vísindagreinar félagsmanna. Með þessu er
hægt að fá smá yfirsýn yfir það sem er að gerast á sviði örverufræði hér á
Íslandi.
Við viljum því endilega að biðja félagsmenn að senda okkur hlekki á
vísindagreinar sínar og ritgerðir. Einnig væri hægt að setja þarna inn
minni PDF skjöl ef ekki eru til hlekkir í ritstörf félagsmanna.
Einnig viljum við minna ykkur á síðuna okkar á Facebook (
https://www.facebook.com/orfi.is). Félagsmenn eru eindregið hvattir til að
pósta þar inn áhugaverðu efni sem og upplýsingum um viðburði sem tengjast
örverufræði á einhvern hátt.
Með bestu kveðju,
Stjórn ÖRFÍ
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130325/a043d40d/attachment.html
More information about the Gerlanet
mailing list