[ÖRFÍ]FW: Erindi Lundi Grand Hotel n.k. mánudag um örverugróður í hraunhellum o.fl. kl 17.00
Viggó Þór Marteinsson
viggo at matis.is
Mon Jun 3 12:21:46 GMT 2013
Áhugaverður fyrirlestur í dag um örverugróður í hraunhellum!
Með kveðju
Stjórn ÖRFÍ
Díana Northup, einn helst sérfræðingur heims á sviði hraunhellaörvera er þessa dagana í heimsókn hér á landi. Hún er afar fróð og skemmtilegur fyrirlesari og það gæti reynst áhugavert að hlusta á hana. Það var ekki fyrr en á síðustu tveim til þrem áratugum að menn fóru að gera sér grein fyrir fjölbreyttum örverugróðri í hellum.
Díana gerði PhD ritgerðina sína um Lechuguilla hellinn í Nýju Mexico sem fannst 1989. Heildarlengd í dag yfir 250 km. Lechuguilla hellirinn er talinn fegursti hellir heims. Carlsbad Caverns sem eru á heimsminjaskrá er skammt frá og er ásamt Lecuguilla og fleiri hellum í samnefndum þjóðgarði. Mikil hraunasvæði eru í Nýju Mexico.
Díana áttaði sig fljótlega á að hraunhellarnir búa yfir mun athyglisverðari örverugróðri en kalkhellarnir og jafnvel því áhugaverðari sem hellarnir eru eldri. Ýmsar úfellingar í hellum sem taldar voru efnasambönd reynast vera tilkomnar fyrir áhrif örvera. Díana hefur unnið að rannsóknum á hraunhellum víða um heim og samanburðarrannsóknum. Hellaörverur, eins og t.d. actinomyces og fleiri eru áhugaverðar í leit að nýjum sýklalyfjum.
Eginmaður Díönu til 28 ára og aðeins yngri, Kenneth Ingham tölvunarfræðingur, er með í för. Hann er frábær hellaljósmyndari og margverðlaunaður fyrir hraunhellamyndir. Hann tekur allt frá macromyndum af örverugróðri, upp í að eyða 1-2 klst í töku samsettra mynda sem hann eyðir síðan dögum í að vinna og tengja saman. Í raun er þetta listgrein og myndir Kenneths margar hverja hreinustu listaverk. Myndir Kenneths og náin samvinna þeirra beggja gera þau einstök á sínu sviði.
--
This message has been scanned for viruses and
dangerous content by MailScanner<http://www.mailscanner.info/>, and is
believed to be clean.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130603/9fda2575/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: diana northup.pdf
Type: application/pdf
Size: 1321215 bytes
Desc: diana northup.pdf
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130603/9fda2575/attachment-0001.pdf
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: NorthupShortBio2012.docx
Type: application/vnd.openxmlformats-officedocument.wordprocessingml.document
Size: 14440 bytes
Desc: NorthupShortBio2012.docx
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130603/9fda2575/attachment-0001.bin
More information about the Gerlanet
mailing list