[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Sýkingar af völdum sníkjusvepps í hrognkelsum umhverfis Ísland.
Birkir Þór Bragason
birkirbr at hi.is
Mon Feb 11 09:14:31 GMT 2013
_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks. _
*
*
*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Árni Kristmundsson* fisksjúkdómafræðingur á Keldum.
Heiti erindis:***Sýkingar af völdum sníkjusvepps (fylking Microsporidia)
í hrognkelsum /(Cyclopterus lumpus) /umhverfis Ísland.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 14. febrúar _kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Hrognkelsi hafa lengi verið mikilvægir nytjafiskar á Íslandi, einkum
vegna hrogna grásleppunnar sem seld eru sem kavíar. Vorið 2011, tóku
grásleppusjómenn eftir afbrigðilega stórum nýrum í hluta veiddra fiska
og voru sýni send til rannsóknar að Tilraunastöðinni að Keldum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að orsakir þessara einkenna má rekja til
áður óþekktrar tegundar sníkjusvepps, sem sýkir kjarna hvítra blóðfrumna
fiskanna. Í erindinu verður greint frá niðurstöðum þessara rannsókna sem
eru samstarfsverkefni starfsmanna á Tilraunastöðinni að Keldum,
University of Malaya í Kuala Lumpur Malasíu og Hafrannsóknastofnunarinnar.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130211/5bf0afec/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130211/5bf0afec/attachment-0001.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list