[ÖRFÍ]FW: Málþing í dag 8 feb. Tilviljun og nauðsyn Monods í þýðingu Guðmundar Eggertssonar

Viggó Þór Marteinsson viggo at matis.is
Fri Feb 8 10:36:31 GMT 2013


Málþingið um Tilviljun og Nauðsyn verður í dag.


http://www.hi.is/vidburdir/tilviljun_og_naudsyn_malthing_um_meistarverk_j_monod

-----------

Líffræðistofa Háskóla Íslands stendur fyrir málþingi þann 8. febrúar n.k. um bókina Tilviljun og nauðsyn, meistaraverk franska nóbelsverðlaunahafans Jacques Monod.

http://www.hi.is/vidburdir/tilviljun_og_naudsyn_malthing_um_meistarverk_j_monod

Jacques Monod var einn fremsti sameindalíffræðingur sögunnar. Á yngri árum vann hann við rannsóknir á lífríki sjávar. Hann var í áhöfn rannsóknarskipsins Pourquois Pas, fyrir hina örlagaríku för þess til Íslands. Atburðir leiddu til þess að Monod fór ekki til Grænlands og Íslands heldur til Kaliforníu og kynntist erfðafræði.

Rannsóknir hans og Francois Jacob á sykurnámi E. coli gerla ollu straumhvörfum í líffræði. Þeir félagar fengu Nóbelsverðlaunin 1965 (ásamt Andre Lwoff) fyrir að uppgötvanir sínar á genastjórnun. Monod velti fyrir sér sameindalíffræði í víðu samhengi í bók sinni Tilviljun og nauðsyn sem kom út árið 1970. Guðmundur Eggertsson prófessor emeritus við Háskóla Íslands þýddi bókina úr frönsku og Hið íslenska bókmenntafélag gaf hana út 2012.

Á málþinginu verða flutt fjögur stutt erindi um Monod, verk hans og áhrif þeirra. Guðmundur Eggertsson mun kynna Jacques Monod og bók hans Tilviljun og nauðsyn. Ólafur S. Andrésson prófessor í erfðafræði við Háskóla Íslands mun ræða sérstaklega rannsóknir Monod og félaga á genastjórn sykurnýtingar E. coli. Björn Þorsteinsson sérfræðingur við Heimspekistofnun HÍ ræðir og gagnrýnir hugtak Monods um "siðfræði þekkingarinnar". Jafnframt mun hann huga að sambandi þessa hugtaks við skoðanir Monods á samfélagsmálum. Að síðustu mun Luc Fuhrmann sendiráðunautur flytja erindið "The impact of Chance and Necessity in the 70s". Fundarstjóri verður Eva Benediktsdóttir, forseti Líf og umhverfisvísindadeildar HÍ.

Málþingið verður haldið 8. febrúar 2013, milli kl. 16:00 og 17:00 í stofu 132 í Öskju Náttúrufræðihúsi HÍ. Aðgangur er ókeypis. Boðið verður upp á léttar veitingar að erindum loknum.

Málþingið er styrkt af Sendiráði Frakklands á Íslandi, Líffræðifélagi Íslands, Örverufræðifélagi Íslands, Mannerfðafræðifélagi Íslands, Verk og náttúruvísindasviði HÍ, Gróco ehf, ORF líftækni, Hinu Íslenska bókmenntafélagi og GPMLS við HÍ.

Fyrir hönd skipuleggjenda

Arnar Pálsson, dósent við HÍ

--
--
Arnar Palsson Ph.D
Faculty of Life and Environmental Sciences Institute of Biology University of Iceland Sturlugata 7, 101 Reykjavik, Iceland
Tel: +(354) 525 4265
Fax: +(354) 525 4632
E-mail: apalsson at hi.is
uni.hi.is/apalsson/en/



--
This message has been scanned for viruses and
dangerous content by MailScanner, and is
believed to be clean.



More information about the Gerlanet mailing list