[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Margvísleg hegðun nýrnaveikibakteríu í laxfiskum.

Birkir Þór Bragason birkirbr at hi.is
Mon Apr 15 10:49:18 GMT 2013



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.
_

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:***Sigríður Guðmundsdóttir*, sýkla- og ónæmisfræðingur á 
Keldum.**

Heiti erindis:***Margvísleg hegðun nýrnaveikibakteríu í laxfiskum.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 18 apríl _kl. 12:20, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Nýrnaveikibakterían, /Renibacterium salmoninarum/, er Gram jákvæður 
stuttur stafur sem sýkir laxfiska. Hún getur sest að innan frumna í 
hýslinum og komist þannig að mestu undan ónæmiskerfinu og áhrifum lyfja. 
Smit berst milli einstaklinga, jafnt í fersku vatni sem söltu, en getur 
einnig borist milli kynslóða í sýktum hrognum. Fjallað verður um ólíkar 
aðferðir við greiningar á bakteríunni og hvaða upplýsingar þær gefa. Við 
sögu koma upplýsingar úr faröldrum í eldisfiski, sýkingartilraunum, 
rannsóknarverkefnum í villtum fiski og aldarfjórðungsreynslu af skimun 
fyrir fiskiræktina í landinu.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130415/b92e8bff/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20130415/b92e8bff/attachment-0001.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list