[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 2012.

Birkir Þór Bragason birkirbr at hi.is
Mon Oct 22 09:40:56 GMT 2012



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks. _*
*

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari*:Guðrún Valdimarsdóttir *lektor, lífefna- og 
sameindalíffræðistofu, Lífvísindasetri læknadeildar HÍ.

Heiti erindis:***Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 2012.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 25. október,_ kl. 12:20, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði árið 2012 skiptast á milli 
tveggja vísindamanna, Dr. John B. Gurdon, University of Cambridge, og 
Dr. Shinya Yamanaka, Kyoto University. Verðlaunin eru veitt fyrir þá 
uppgötvun að þroskaðar, sérhæfðar frumur er hægt að endurforrita í 
fjölhæfar stofnfrumur. Uppgötvun þeirra breytti þeirri almennu skoðun að 
starfsemi og eiginleikar líkamsfruma (somatic cells) væru óafturkræf. 
Dr. Gurdon klónaði fyrstur mannafrosk þar sem hann flutti kjarna úr 
sérhæfðri líkamsfrumu úr froski í kjarnalaust eggog sýndifram á að 
erfðaupplýsingarnar úr líkamsfrumunni nægðu til að mynda 
halakörtu(1962). Dr. Yamanaka varð fyrstur til að umbreyta sérhæfðri 
líkamsfrumu beint í fjölhæfa stofnfrumu (2006).Í erindinu verða 
rannsóknir þeirra raktar og fjallað um notagildi þeirra í 
læknisfræðilegum tilgangi.

________________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20121022/ea168260/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20121022/ea168260/attachment-0001.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list