[ÖRFÍ]Fræðslufundur MAST: Leyfileg aukefni í matvælum

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Thu Nov 22 13:07:18 GMT 2012


Til dreifingar...

Fræðslufundur MAST: Leyfileg aukefni í matvælum

Matvælastofnun heldur fræðslufund um leyfileg aukefni í matvælum 
þriðjudaginn 27. nóvember 2012 kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður 
fjallað um nýútkomna aukefnalista sem skilgreina hvaða aukefni má setja í 
matvæli og reglur um notkun þeirra. 
 
Aukefnalistarnir taka gildi þann 1. júní 2013 og eru þeir hluti af 
reglugerð nr. 978/2011 um aukefni. Fjallað verður um efnisatriði 
reglugerðarinnar, uppbyggingu aukefnalistanna og gagnagrunn 
Evrópusambandsins í þeim tilgangi að auðvelda fyrirtækjum að framfylgja 
ákvæðum reglugerðinnar. Upplýsingar um aukefnareglur má nálgast á vef 
Matvælastofnunar. 

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST 
undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að 
fræðslufundi loknum.

Fyrirlesari: 

    Jónína Þ. Stefánsdóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun 

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í 
Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að 
norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

http://www.mast.is/frettaflokkar/frett/2012/11/21/Leyfileg-aukefni-i-matvaelum/
 
Með kveðju, / Best regards, 

Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication
______________________________
 
 
Austurvegi 64 
800 Selfoss 
 
Sími/tel: (+354) 530 4800 
Fax : (+354) 530 4801 
www.mast.is 
 
Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur og viðhengi hans eru eingöngu 
ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gætu innihaldið upplýsingar 
sem eru trúnaðarmál. Please note that this e–mail and it’s attachments are 
intended for the named addressee only and may contain information that is 
confidential and privileged.
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20121122/8a3af67d/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 5608 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20121122/8a3af67d/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list