[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum. Sigurður Ingvarsson. Meinafræði að Keldum í minningu Guðmundar Georgssonar.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Jan 9 10:40:09 GMT 2012
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fyrirlesari: Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður Tilraunastöðvarinnar að
Keldum.
Heiti erindis: Meinafræði að Keldum í minningu Guðmundar Georgssonar.
Erindið verður haldið miðvikudaginn 11. janúar kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Miðvikudaginn 11. janúar 2012 er við hæfi að rifja upp rannsóknastörf
Guðmundar Georgssonar læknis, en þá eru liðin 80 ár frá fæðingu hans, en
hann lést 13. júní 2010. Fræðasvið Guðmundar var meinafræði og starfaði hann
lengst af á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum sem
sérfræðingur í líffærameinafræði og einnig veitti hann stofnuninni forstöðu
um árabil. Doktorsritgerð Guðmundar frá Háskólanum í Bonn fjallaði um
æxlisvöxt, en að Keldum starfaði hann lengst af með príon- og veirusjúkdóma
í sauðfé. Meinafræði hefur skipað stóran sess í starfinu á Keldum og framlag
Guðmundar á því fræðasviði efldi skilning á framgangi sjúkdóma og samspili
hýsils og sýkils. Hann var í mikilvægri alþjóðlegri samvinnu beggja vegna
Atlantshafsis. Guðmundur vann að því að efla Tilraunastöðina sem alþjóðlega
vísindastofnun og vildi ávallt framgang hennar sem mestan. Í fyrirlestrinum
verður rýnt í helstu vísindaritverk Guðmundar.
_______________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Sími 896 5811
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120109/6bb0a5c0/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120109/6bb0a5c0/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list