[ÖRFÍ]Fræðslufundur MAST: Eftirlit með lyfjanotkun og lyfjaleifum í dýrum
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Mon Apr 23 09:51:18 GMT 2012
Vinsamlega áframsendið til ykkar starfsmanna/meðlima...
FRÆÐSLUFUNDUR MAST: EFTIRLIT MEÐ LYFJANOTKUN OG LYFJALEIFUM Í DÝRUM
Matvælastofnun heldur fræðslufund um eftirlit með lyfjanotkun og
lyfjaleifum í dýrum fimmtudaginn 26. apríl kl.15:00 - 16:00. Á fundinum
verða kynntar nýjar reglur um rafræna skráningu dýralækna á dýralyfjum.
Nýja rafræna skráningarkerfið HEILSA verður jafnframt kynnt þar sem
dýralæknum ber að skrá notkun og ávísun lyfseðilsskyldra lyfja í dýr.
Skráningarkerfið hefur þegar tekið gildi fyrir nautgripi og hross og munu
aðrar dýrategundir fylgja í kjölfarið. Tilgangur skráningarinnar er að
stuðla að aukinni dýravelferð og neytendavernd með því að auðvelda
yfirvöldum að hafa eftirlit með lyfjanotkun í dýrum og lyfjaleifum í
búfjárafurðum.
Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST
undir Útgáfa - Fræðslufundir.
Fyrirlesarar:
Auður L. Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir hjá Matvælastofnun
Björn Steinbjörnsson, dýralæknir lyfjamála hjá Matvælastofnun
Kjartan Hreinsson, dýralæknir heilbrigðiseftirlits hjá
Matvælastofnun
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í
Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu
(Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!
Sjá www.mast.is
Með kveðju, / Best regards,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication
______________________________
Austurvegi 64
800 Selfoss
Sími/tel: (+354) 530 4800
Fax : (+354) 530 4801
www.mast.is
Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur og viðhengi hans eru eingöngu
ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gætu innihaldið upplýsingar
sem eru trúnaðarmál. Please note that this e–mail and it’s attachments are
intended for the named addressee only and may contain information that is
confidential and privileged.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120423/01793885/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 5608 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120423/01793885/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list