[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Sigurveig Þóra Sigurðardóttir. Ofnæmi í mönnum.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Sep 19 11:04:58 GMT 2011



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 


Fyrirlesari:  Sigurveig Þóra Sigurðardóttir, sérfræðingur í barnalækningum,
ofnæmis- og ónæmislækningum á ónæmisfræðideild Landspítalans.


Heiti erindis:  Ofnæmi í mönnum.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 22. september, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Ofnæmi er meðal algengustu krónísku vandamála á meðal manna um allan heim.
Einkennin geta verið allt frá því að vera mjög væg og upp í lífshættulegt
ástand.

Einkenni ofnæmis koma frá nefi, lungum, hálsi, afholum nefs, meltingarvegi
eða húð og hjá sumum veldur ofnæmi einkennum astma. Alvarlegasta form
ofnæmis er ofnæmislost sem getur verið lífshættulegt.

Farið verður í helstu ofnæmissjúkdóma í mönnum, ónæmissvarið, algengi og
klíníska birtingu. Einnig verður kynnt fæðuofnæmi hjá íslenskum börnum til
2,5 árs aldurs.

 

________________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Sími 896 5811

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110919/d83255e5/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110919/d83255e5/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list