[Gerlanet] Örverugreinir (FACSAria II cell sorter) Kynning á notkunarmöguleikum í rannsóknum í örverufræði
Þórunn Þorsteinsdóttir
thoruth at hi.is
Sun Mar 27 21:12:51 GMT 2011
Örverugreinir (FACSAria II cell sorter)
Kynning á notkunarmöguleikum í rannsóknum í örverufræði
Örverufræðifélag Íslands (ÖRFÍ) og Matís halda kynningu á örverugreininum
FACSAria hjá Matís vínlandsleið 12 Grafarholti 31. mars næstkomandi frá kl
16:30-18:30.
Farið verður yfir grunnþætti tækninnar ásamt því að skoða nokkur einföld sýni
með tækinu til glöggvunar á því hvernig hægt er telja og sortera bakteríur og
þörunga.
Vinsamlegast skráið ykkur hjá Viggó Þór Marteinssyni á netfangið
(Viggo at matis.is) fyrir kl. 16 á miðvikurdaginn 30. mars.
Flow cytometry er tækni sem hægt er að nýta til talninga og greininga á stökum
frumum. Tæknin byggir á því að aðgreina frumur í vökvastraumi en að auki er
hægt er að mæla mismunandi eðlis- og/eða efnabreytur samtímis hjá einni frumu
á sekúndubroti með ljósnæmum rafrænum hætti. Með leysigeislum, nemum og
meðhöndlun sýna með mismunandi flúrljómandi efnum er hægt að mæla og aðgreina
frumur sértækt eftir þeim eiginleikum. Með þessum hætti er mögulegt að greina
og telja nokkur þúsund örverur á sekúndu á rauntíma og um leið velja og
einangra örveruhópa með mismunandi eiginleikum. Frumugreinir (cytometer)
svipar mjög til smásjár en í staðin fyrir að fá mynd af viðfangsefninu þá er
hægt að fá fram mikið magn (high-throughput) upplýsinga á mjög stuttum tíma og
útfrá gefnum forsendum að flokka örveruhópa í aðskilin glös. Þannig að hægt er
að greina þær örverur sérstaklega sem eru aðskildar frá sýninu. Einnig er hægt
að beita sameindalíffræðilegum aðferðum á aðskildar örverur. Með þessu móti
verður hægt að flokka sértækt mismunandi örverur og ná í nægjanlegan mikinn
lífmassa til að vinna með, bæði til ræktunar og til rannsókna með
sameindalíffræðilegum aðferðum.
Með kveðju,
Stjórn ÖRFÍ
More information about the Gerlanet
mailing list