[Gerlanet] Fræðslufundur á Keldum. Hannes Petersen. Verða hvalir sjóveikir?

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Mar 21 09:39:54 GMT 2011



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

 

Fyrirlesari:  Hannes Petersen yfirlæknir Landspitala, dósent Læknadeild HÍ.

Heiti erindis:  Verða hvalir sjóveikir?

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 24. mars, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

      Hvalir eru sjávarspendýr sem deyja á landi. Forveri hvalsins flokkast
með jafntáa hófdýrum svo sem sauðfé, svínum og flóðhestum, en þeir
síðastnefndu eru þau landdýr sem skyldust eru hvölunum. Ferð þessa forvera í
haf út er talin hafa hafist fyrir um 50 miljón árum.

      Það er vel þekkt meðal þeirra er stunda sjósund að sjávarhreyfingar
framkalla fljótt einkenni sjóveiki, einkenni sem eru það kröftug og hamlandi
að hætta getur stafað af, en svipað á einnig við um þá er starfa í
hreyfiríku umhverfi, ss. um borð í skipi. Mikilvægt er að aðlagast þessu
hreyfiríka umhverfi sem fyrst svo takast megi á við þær aðstæður sem til
staðar eru. Ætla má að í þeirri þróunargöngu frá landi í haf, hafi forverar
hvalsins þjáðst af sjóveiki. 

      Með að kanna útlitslega innra eyra hvalsins má ráða í þær lausnir sem
gripið var til í aðlögunarferlinu og hefur með þróunina land-haf að gera.
Með því að gera módel af innra eyra hvala, byggt á tölvusneiðmyndun á
klettbeinshluta gagnaugabeins hvalanna má gera sér grein fyrir þeirri
útlitsbreytingu sem orðið hefur á jafnvægishluta innra eyrans, þá borið er
saman við innra eyra manns. Þannig má gera sér grein fyrir þeim breytingum
sem orðið hafa við aðlögunina land-haf, en þær má nota til að læra og
hugsanlega leiðbeina, hvað sömu aðlögun varðar hjá manninum, aðlögun sem er
manninum nauðsynleg þá er hann vistast í hreyfiríku umhverfi, eins og á sjó.

 

________________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Símar 585 5100 og 896 5811

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110321/8c1cdb11/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110321/8c1cdb11/attachment-0001.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list