[Gerlanet] Örveruvistfræði-workshop

Þórunn Þorsteinsdóttir thoruth at hi.is
Wed Mar 9 21:20:49 GMT 2011


Sæl aftur, þið öll.

Ég minni aftur á mini-ráðstefnuna/vinnufundinn um sub-Arctic microbial ecology
sem verður á Akureyri 28. og 29. mars (eftir tæpar þrjár vikur). Ég er nú að
ganga frá mælendaskrá fundarins og óska því hér með eftir erindum.
Vinsamlegast afsakið hvað fyrirvarinn er stuttur, en heimsókn Englendinganna
ber fremur brátt að (fyrir þau ykkar sem ekki fenguð fyrri póstinn, þá er
afrit af honum hér fyrir neðan).

Hugmyndir að sessjon-titlum eru í póstinum fyrir neðan, en ég er í raun opinn
fyrir hvers kyns erindum sem tengjast örveruvistfræði og má sú tenging jafnvel
vera langsótt. Eitt af því sem ég vonast eftir að ráðstefnan skili af sér er
að erlendu gestirnir fái næga innsýn í náttúru Íslands og þær rannsóknir sem í
gangi eru hér á landi til að geta tekið virkan þátt í vali viðfangsefna og
sýnatökustaða fyrir sumarnámskeið í örveruvistfræði sem haldin verða sumrin
2012, 2013 og 2014. Við höfum því ekki eingöngu áhuga á erindum um
örverufræði, heldur einnig um vistfræði, jarðfræði, jöklafræði,
umhverfisefnafræði og sitthvað fleira. Ef þið vitið um skemmtileg verkefni sem
í gangi eru og tengst geta áhugaverðum örveruvistkerfum í náttúru Íslands
megið þið gjarnan láta mig vita. Jaðarvistkerfi á borð við jökulís,
hraunhella, hveri o.fl. munu örugglega vekja mikinn áhuga hjá erlendu
gestunum, en ég veit að þeir hafa einnig mikinn áhuga á rótarhvelsörverum,
veirum í umhverfinu og ýmsu fleiru.

Bestu kveðjur,
Oddur

________________________________
Frá: Oddur Vilhelmsson
Sent: 25. febrúar 2011 08:37
Viðtakandi: María Markúsdóttir; Anna Rut Jónsdóttir; Margrét Auður
Sigurbjörnsdóttir; Guðný Júlíana Jóhannsdóttir; Hjörleifur Einarsson; Jóhann
Örlygsson; Arnheiður Eyþórsdóttir; Rannveig Björnsdóttir; 'kp at ni.is';
'starri at ni.is'; 'gge at ni.is'; 'gudnia at hi.is'; 'Eva Benediktsdóttir'; 'Ólafur S.
Andrésson'; 'Viggó Þór Marteinsson'; 'gudmundur.o.hreggvidsson at matis.is';
'olafur.h.fridjonsson at matis.is'; 'solveig.k.petursdottir at matis.is'; 'Jakob'
Efni: Örveruvistfræði-workshop

Sæl öll,
Dagana 27. til 30. mars n.k. verður lítil "workshop" hér á Akureyri þar sem
við munum funda með samstarfsaðilum okkar frá U. Reading og fleirum um
fyrirhugaðar örveruvistfræðirannsóknir á Norðurlandi. Bráðabirgðatitill:
"Workshop on sub-Arctic microbial ecology". Meðal annars munum við ræða
fyrirhugaðar sýnatökur úr Jökulsá á Fjöllum í sumar og um sameiginlegt
vettvangsnámskeið HA og UR í örveruvistfræði sem við erum að skipuleggja.
Einnig væri gaman að heyra um önnur örveruvistfræðiverkefni sem eru í gangi og
hefðu ef til vill áhuga á að tengjast vettvangsnámskeiðinu með einhverjum
hætti.
Það væri gaman að heyra frá ykkur ef þið hefðuð áhuga og tök á að kíkja til
okkar á þessum tíma og ekki væri verra ef þið væruð til í að halda erindi
fyrir okkur um viðeigandi efni.
Hér eru mjög gróf dagskrárdrög (á örugglega eftir að breytast eitthvað):
Workshop on sub-Arctic microbial ecology

27 March ? arrival at 10:15
Pre-meeting field trip.
Mixer (BYOB)
28 March ? Microbial ecology and environmental microbiology in Iceland:
Morning session ? Iceland ecology: microbiota, flora, funga and fauna .
Lunchtime session ? Bacterial interactions with flora and funga.
Afternoon session ? Extreme environments in the sub-Arctic (hot springs,
glaciers).
Evening session ? Glacial rivers and freshwater microbiology.

29 March ? Practical issues:
Morning session ? Sampling in the Highlands and other extreme environments.
Lunchtime session ? Available lab and classroom facilities.
Afternoon session ?Money matters: the cost of sampling, labwork and teaching.
Evening session ? Housing and amenities in Akureyri.

30 March
Post-meeting field trip
Farewell do (BYOB)

31 March ? departure at 09:40

PS: Ég sendi þetta á þá örverufræðinga sem mér dettur í fljótu bragði í hug að
hafi áhuga á efninu, en ég er alveg örugglega að gleyma einhverjum. Ég yrði
þakklátur ef þið mynduð skima í gegn um viðtakendalistann og láta mig vita
hverja vantar.
Bestu kveðjur,
Oddur
[cid:image001.png at 01CBD4C7.1FDA9430]
-------------------------------
[cid:image002.jpg at 01CBD4C7.1FDA9430]
Oddur Vilhelmsson
Senior Lecturer (Biotechnology)
Department of Natural Resource Sciences
University of Akureyri<http://www.unak.is/>
Borgir vid Nordurslod, room 226
IS-600 Akureyri
Iceland

Phones: +354 460 8514 / +354 697 4252
Email: oddurv at unak.is<mailto:oddurv at unak.is>
------------------------------------

-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.png
Type: image/png
Size: 3678 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110309/f6c386c5/attachment.png 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image002.jpg
Type: image/jpeg
Size: 4187 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110309/f6c386c5/attachment.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list