[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Ástríður Pálsdóttir. Utangenaerfðir (epigenetics).
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Mar 8 09:31:09 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Fyrirlesari: Ástríður Pálsdóttir sameindalíffræðingur.
Heiti erindis: Utangenaerfðir (epigenetics).
Erindið verður haldið fimmtudaginn 10. mars, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Utangenaerfðir fjalla um stjórn á genastarfsemi sem ekki er skráð í DNA
erfðaefninu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um helstu aðferðir frumna til
þess að stýra utangenaerfðum og hvernig umhverfi frumna getur haft áhrif á
slíka genastjórn. Sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að óstjórn á
utangenaerfðum eigi þátt í mörgum algengum sjúkdómum. Nú eru margir
rannsóknahópar að rannsaka hvernig umhverfisáhrif sem fólk verður fyrir
snemma á ævinni, eða jafnvel fyrir fæðingu, geta haft áhrif á heilsu þess
seinna á ævinni.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110308/03173945/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110308/03173945/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list