[Gerlanet] Fræðslufundur á Keldum. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir. Áhrif móður á þróun sumarexems hjá afkæmi; uppsetning tilraunar.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Jan 31 11:47:41 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Fyrirlesari: Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur.
Heiti erindis: Áhrif móður á þróun sumarexems hjá afkæmi; uppsetning
tilraunar.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 3. febrúar, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Sumarexem er húðofnæmi í hestum sem orsakast af ofnæmisvökum úr biti smámýs,
(Culicoides spp) sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins er mun hærri í
útfluttum hestum en í íslenskum hestum fæddum erlendis. Umhverfisáhrif í
móðurkviði og frumbernsku eru talin skipta sköpum fyrir ofnæmi afkvæmis
seinna á ævinni.
Sumarexem í íslenskum hestum er kjörið til að bera saman dýr af sama
erfðauppruna, sem eru útsett fyrir ofnæmisvökum á mismunandi þroskaskeiðum
ævinnar. Folöld mera sem bitnar eru af smámýi á meðgöngu fá vörn gegn
sumarexemi með broddmjólk. Þetta er rannsóknartilgáta Dr. Bettinu Wagner,
Cornell Háskóla í Íþöku í Bandaríkjunum. Tilgátan verður prófuð á íslenskum
folöldum í samstarfi við Keldur og Matvælastofnun. Greint verður frá
bakgrunni tilgátunnar og uppsetningu tilraunar.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110131/afa27429/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110131/afa27429/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list