[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Guðbjörg Jónsdóttir. Áhrif plantna. sem notaðar eru í alþýðulækningum, á ónæmiskerfið.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Jan 17 11:12:58 GMT 2011



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

 

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

 

Fyrirlesari:  Guðbjörg Jónsdóttir lífeindafræðingur.

Heiti erindis:  Áhrif plantna, sem notaðar eru í alþýðulækningum, á
ónæmiskerfið.. 

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 20. janúar, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Margar plöntur hafa verið notaðar í alþýðulækningum hér á Íslandi, þar á
meðal horblaðka, vallhumall, blágresi og mjaðjurt en þær eru taldar hafa góð
áhrif á ýmsa sjúkdóma, m.a. liðagigt. Áhrif þessara plantna á ónæmiskerfið
hafa hins vegar lítið verið rannsökuð. Megin markmið rannsóknarinnar var að
kanna hvort þessar plöntur hefðu áhrif á þroskun angafrumna in vitro og getu
þeirra til að ræsa ósamgena CD4+ T frumur. Niðurstöður rannsóknarinnar benda
til þess að vatnsútdrættir af horblöðku og vallhumli leiði til
ónæmisdempandi boðefnaseytunar hjá angafrumum sem dregur úr getu þeirra til
að ræsa Th17 frumusvar hjá ósamgena CD4+ T frumum og einnig minnkar
vatnsútdráttur af horblöðku getu angafruma til að ræsa Th1 frumusvar. Slík
áhrif gætu mögulega haft hagnýtt gildi við að draga úr
sjálfsofnæmissjúkdómum þar sem Th1 og/eða Th17 frumur eru ráðandi.

 

________________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Símar 585 5100 og 896 5811

Tölvupóstfang  shr at hi.is

 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110117/6d368e13/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110117/6d368e13/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list