[Gerlanet] Fræðslufundur á Keldum. Erla Soffía Björnsdóttir. Skyldleiki streptókokka stofna af flokki B sem sýkja menn og kýr á Íslandi.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Feb 21 11:01:43 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Fyrirlesari: Erla Soffía Björnsdóttir lífeindafræðingur
Heiti erindis: Skyldleiki streptókokka stofna af flokki B sem sýkja menn og
kýr á Íslandi
Erindið verður haldið fimmtudaginn 24. febrúar, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Streptókokkum af flokki B (Streptococcus agalactiae, group B streptococcus,
GBS) var fyrst lýst í kringum 1900 sem sýkingarvaldi í júgurbólgu hjá kúm.
Um 1970 var GBS orðinn einn aðalsýkingavaldurinn í ífarandi sýkingum hjá
nýburum og síðustu ár hefur tíðni ífarandi sýkinga hjá fullorðnum aukist.
Hægt er að flokka GBS í 10 mismunandi hjúpgerðir eftir gerð fjölsykra í hjúp
(Ia,Ib, II IX). Markmið rannsóknarinnar var að bera saman GBS stofna úr
ífarandi sýkingum við stofna sem ræktast hafa úr kúamjólk á Íslandi.
Niðurstöður stofngreiningar benda til að sömu GBS stofnar sýki menn og kýr á
Íslandi þar sem að um helmingur stofna sem ræktuðust frá kúamjólk tilheyrðu
klónum sem valda ífarandi sýkingum hjá mönnum.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110221/3e1bdd8b/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110221/3e1bdd8b/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list