[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum. Árni Kristmundsson. Útbreiðsla og áhrif PKD-nýrnasýki á villta laxfiskastofna á Íslandi.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Dec 5 11:28:28 GMT 2011



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Fyrirlesari: Árni Kristmundsson fisksjúkdómafræðingur á Keldum.

Heiti erindis: Útbreiðsla og áhrif PKD-nýrnasýki á villta laxfiskastofna á
Íslandi.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 8. desember kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

PKD-nýrnasýki, sem orsakast af smásæju sníkjudýri Tetracapsuloides
bryosalmonae, er alvarlegur og útbreiddur sjúkdómur í laxfiskum í Evrópu,
bæði villtum og í eldi. Dæmi eru um mikil afföll í villtum laxfiskastofnum
erlendis, s.s. í Sviss og Noregi. Bleikja er lítið rannsökuð m.t.t.
sjúkdómsins. Smittilraunir hafa þó sýnt að hún sé mjög næm fyrir sýkinni.

PKD-nýrnasýki var óþekkt á Íslandi þar til árið 2008 er hún greindist í
bleikju úr Elliðavatni. Rannsóknir síðustu 3ja ára benda til þess að
sýkillinn sé útbreiddur meðal laxfiska á Íslandi. Há tíðni fiska með
alvarleg einkenni sjúkdómsins hefur greinst í vötnum þar sem bleikju hefur
fækkað mikið. Líklegt er að PKD-sýki valdi umtalsverðum afföllum og sé því
afgerandi áhrifaþáttur í hnignun bleikjustofna þessara vatna.

 

_______________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Sími 896 5811

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111205/32eb1286/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111205/32eb1286/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list