[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Stefán Ragnar Jónsson og Valgerður Andrésdóttir. Græn mæði-visnuveira.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Aug 29 11:30:40 GMT 2011



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Fyrirlesarar:  Stefán Ragnar Jónsson og Valgerður Andrésdóttir
sameindalíffræðingar á Keldum.

Heiti erindis:  Græn mæði-visnuveira.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 1. september, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Mæði-visnuveira er lentiveira sem veldur lungnabólgu (mæði) og heilabólgu
(visnu) í sauðfé. Veiran er náskyld eyðniveirunni og gefa rannsóknir á
mæði-visnuveiru vísbendingar um líffræði eyðniveirunnar. Við höfum klónað
erfðaefni mæði-visnuveirunnar, sem er forsenda þess að hægt sé að rannsaka
áhrif og virkni einstakra gena.

Grænt flúrprótein (GFP) er flúrljómandi prótein sem upphaflega var einangrað
úr marglyttunni Aequorea victoria. GFP er mikið notað sem merki í lifandi
frumum og eru þá próteinin sem eru til rannsóknar lýst upp með því að tengja
þau við GFP. Við höfum skeytt geni GFP við dUTPasa gen í visnuveiru, en við
það verða frumur sem sýktar eru með veirunni flúrljómandi og gerir það
rannsóknir á veirunni einfaldari og fljótvirkari. Sýnd verður stutt kvikmynd
þar sem þessari vinnu er lýst.   

 

________________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Sími 896 5811

 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110829/9bf9eb01/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110829/9bf9eb01/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list