[Gerlanet] Vorþing ÖRFÍ
Þórunn Þorsteinsdóttir
thoruth at hi.is
Mon Apr 11 22:00:36 GMT 2011
Árlegt VORÞING Örverufræðifélags Íslands verður haldið þriðjudaginn 19. apríl
2011. Að venju verður Vorþingið haldið í boði Gróco ehf. í húsakynnum þeirra,
Þverholti 14, 105 Reykjavík. Þingið stendur yfir frá kl. 20:00 til 22:00 og
mun Gróco ehf. bjóða upp á veitingar.
Félagsmenn sem ætla að kynna veggspjöld eru vinsamlegast beðnir um að senda
upplýsingar um titil, höfund(a) og nafn stofnunar (stofnanna) og útdrátt til
ritstjóra fréttabréfsins (thoruth at hi.is) fyrir 15. apríl n.k.. Óskað er eftir
sem flestum veggspjöldum og útdráttum, svo hægt sé að fá greinagóða mynd af
þeim örverurannsóknum sem eru stundaðar hér á landi. Í upphaf þings gefst
félagsmönnum tækifæri til að kynna veggspjöld sín í mjög fáum orðum. Gert er
ráð fyrir að einn höfundur kynni veggspjald, kynni sig, stofnun sína, titil
veggspjalds og innihald þess í nokkrum setningum (hámark 5 mín.). Félagsmenn
geta í lok kynninga fengið frekari upplýsingar um efni veggspjalda með
höfundum.
Með kveðju
Stjórn ÖRFÍ
More information about the Gerlanet
mailing list