[Gerlanet] Fræðsluerindi að Keldum. Laufey Steingrímsdóttir. Hvað er svona merkilegt við D-vítamín?
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Apr 5 08:50:20 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Fyrirlesari: Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og
næringarfræðideild Háskóla Íslands.
Heiti erindis: Hvað er svona merkilegt við D-vítamín?
Erindið verður haldið fimmtudaginn 7. apríl, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Rannsóknir og áhugi á D-vítamíni hafa gengið í endurnýjun lífdaganna. Á
fyrri hluta 20. aldar var D-vítamín prísað sem töframeðal sem eyddi
landlægri beinkröm meðal barna. Nú hafa rannsóknir sýnt að bágur
D-vítamínhagur tengist fjölda annarra heilsuþátta en þeim sem varða
beinheilsu.
D-vítamín er gjarnan kallað sólskinsvítamínið, enda því aðeins nauðsynlegt
næringarefni ef geislar sólar eða aðrir útfjólubláir geislar ná ekki að
örva myndun cholecalciferols í húð. Þörf manna fyrir D-vítamín er því
breytileg eftir lífsháttum, árstíma og búsetu og hafa vangaveltur og deilur
um ráðlagt magn D-vítamíns í fæðu sprottið úr þeim jarðvegi. Í
fyrirlestrinum verður fjallað um tengsl D-vítamíns við heilsuþætti og rök
færð fyrir því að ráðlögðum dagskömmtum fyrir D-vítamín verði breytt.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110405/db94e529/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20110405/db94e529/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list