[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir. Sýklalyfjaónæmi baktería í búfénaði á Íslandi - mögulegur flutningur til manna?
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Nov 1 11:42:54 GMT 2010
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Fyrirlesari: Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir líffræðingur.
Heiti erindis: Sýklalyfjaónæmi baktería í búfénaði á Íslandi mögulegur
flutningur til manna?
Erindið verður haldið fimmtudaginn 4. nóvember, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Tíðni baktería sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum fer vaxandi, bæði meðal
manna og dýra, og getur valdið vandkvæðum við meðhöndlun sýkinga. Megin
markmið þessarar rannsóknar var að ákvarða tíðni ónæmra baktería í
sláturdýrum á Íslandi og meta hvort, og þá í hve miklum mæli, þessar
bakteríur berast frá dýrum til manna, þá aðallega með matvælum. Rannsakaðir
voru Salmonella og Campylobacter stofnar sem einangraðir voru í reglulegu
eftirliti með sláturdýrum á árunum 2001-2005. Einnig voru rannsakaðir
Escherichia coli stofnar sem einangraðir voru úr svínum, kjúklingum,
svínakjöti, kjúklingakjöti, kjúklingafóðri, starfsmönnum sláturhúsa og
sjúklingum utan sjúkrahúsa á árunum 2005-2008.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að tíðni sýklalyfjaónæmra Salmonella og
Campylobacter stofna í kjúklingum og svínum á Íslandi er frekar lág.
Hinsvegar er tíðni sýklalyfjaónæmis meðal E. coli stofna úr sláturdýrum og
matvælum nokkuð há, sérstaklega í kjúklingum og kjúklingakjöti, en engin
sýklalyf eru notuð í kjúklingaeldi á Íslandi. Niðurstöðurnar styðja
ennfremur þá tilgátu að ónæmar bakteríur geti borist með fóðri í kjúklinga
og að kjúklingar og afurðir þeirra geti verið uppspretta ónæmra E. coli
stofna í mönnum.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101101/ab41fc2c/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101101/ab41fc2c/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list