[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Sigurður Guðmundsson. Heilsa og þróun í Afríku sunnan Sahara.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Feb 23 10:09:26 GMT 2010
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fyrirlesari: Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla
Íslands.
Heiti erindis: Heilsa og þróun í Afríku sunnan Sahara.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 12:20 á Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fjallað verður um alþjóðaheilsu (global health) og mikilvægi hugtaksins.
Nokkur atriði alþjóðlegrar þróunaraðstoðar verða rakin og fjallað um
ávinning hennar og ágalla. Rætt verður hvers vegna ekki hefur gengið betur.
Lýst verður mannlífi og heilsufari í Afríku sunnan Sahara, einkum Malawi og
Sierra Leone, og þróun helstu sjúkdóma þar. Störf starfsmanna í
þróunaraðstoð verða nefnd og loks reynt að segja til um hvaða áherslur
þróunarsamsvinnu skila einhverjum árangri.
______________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100223/a5f610e5/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100223/a5f610e5/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list