[Gerlanet] Vísindadagur á Keldum 30. apríl 2010 - auglýsing

Birkir Þór Bragason birkirbr at hi.is
Mon Apr 26 10:05:10 GMT 2010


Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi og aðra viðburði sem haldnir eru á
Tilraunastöðinni að Keldum.

 

Gætuð þið vinsamlegast áframsent eftirfarandi auglýsingu um Vísindadag á
Keldum þann 30. apríl næstkomandi  til ykkar fólks.

 

Fyrir hönd Vísindadagsnefndar, 

Birkir Þór Bragason, PhD

Veiru- og sameindalíffræðideild

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

 

 

 

 

cid:655375009 at 06032006-190B

 

Vísindadagur á Keldum föstudaginn 30. apríl 2010.

 

Föstudaginn 30. apríl næstkomandi verður Vísindadagur á Keldum. Þetta er
eins dags ráðstefna sem er opin öllum áhugasömum þeim að kostnaðarlausu. Á
Vísindadeginum munu starfsmenn Tilraunastöðvarinnar, og nemendur í
rannsóknanámi, kynna rannsóknir sínar með erindum og veggspjöldum. Dagurinn
hefst kl. 8:45 í bókasafni Keldna með setningu mennta- og
menningarmálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur.

 

Dagskráin er eftirfarandi: 

 
8:45-9:00  Ráðstefna sett. Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra.
 
9:00-9:25  Þróun sérvirka ónæmiskerfisins: Hvaðan og hvers vegna? Bergljót
Magnadóttir.             
 
9:25-9:40  Rannsókn á genatjáningu í bráðasvari þorsks með rauntíma-PCR.
Sigríður Steinunn Auðunsdóttir, Birkir Þór Bragason, Zophonías O. Jónsson og
Bergljót Magnadóttir.
 
9:40-9:55  Nýrnaveikibakterían í villtum urriða: greining í mismunandi
vefjasýnum. Sigríður Guðmundsdóttir, Ívar Örn Árnason, Árni Kristmundsson og
Diane Elliott.
 
9:55-10:10  Nýrnaveikibakterían í sýktum eldisklaklaxi: samanburður
greiningaraðferða. Ívar Örn Árnason, Sunna Sigurðardóttir, Árni
Kristmundsson, Sigurður Helgason, Vilhjálmur Svansson og Sigríður
Guðmundsdóttir.
 
10:10-10:25  Rannsókn á sýkingarmætti seytis fisksýkilsins Moritella
viscosa. Bryndís Björnsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir og Bjarnheiður K.
Guðmundsdóttir.
 
10:25-10:50  Kaffi og veggspjaldasýning
 
10:50-11:15  Rannsóknir á sýkingarmætti Aeromonas salmonicida subsp.
achromogenes í fiski. Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir.
 
11:15-11:30  Barkabólga í sauðfé - brjóskbólga í barkakýli (laryngeal
chondritis). Ólöf G. Sigurðardóttir.
 
11:30-11:45  Nor98 riða – helstu eiginleikar og faraldsfræði. Stefanía
Þorgeirsdóttir.
 
11:45-12:00  Sýklalyfjaónæmi baktería í búfénaði á Íslandi - mögulegur
flutningur til manna? Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir, Gunnsteinn Haraldsson,
Vala Friðriksdóttir, Karl G. Kristinsson og Eggert Gunnarsson.
 
12:00-12:15  Um áður ókunnar tegundir sníkjudýra á Íslandi. Karl Skírnisson,
Alexander Galkin, Aneta Kostadinova, Berglind Guðmundsdóttir,Damien Jouet,
Gergana Vasileva, Kirill V. Galaktionov, Libuse Kolarova, Sergei Mironov og
Sólrún Þ. Þórarinsdóttir.
 
12:15-13:15 Matur og veggspjaldasýning
 
13:15-13:40  Sumarexem í hestum, möguleikar á ónæmismeðferð. Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir.
 
13:40-13:55  Einangrun og tjáning ofnæmisvaka úr smámýi (Culicoides spp.)
sem orsakar sumarexem í hestum. Heiða Sigurðardóttir, Sigríður Jónsdóttir,
Eliane Marti, Vilhjálmur Svansson og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir.
 
13:55-14:10  Þróun á veiruferju til bólusetninga gegn sumarexemi í hestum.
Lilja Þorsteinsdóttir, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Einar G. Torfason og
Vilhjálmur Svansson. 
 
14:10-14:25  Einangrun og tjáning á hýalúronidasa, aðalofnæmisvaka í
sumarexemi í hestum. Sigríður Jónsdóttir, Þórunn Sóley Björnsdóttir,
Sigríður Kristín Rúnarsdóttir, Einar Mäntylä, Eliane Marti, Vilhjálmur
Svansson og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir.
 
14:25-14:40  Inflúensa í svínum. Vilhjálmur Svansson
 
14:50-15:10  Kaffi og veggspjaldasýning 
 
15:10-15:25  Rannsóknir á genatjáningu og meðhöndlun cystatin C í
fíbróblöstum CST3-L68Q arfbera. Birkir Þór Bragason, Gustav Östner, Björn
Þór Aðalsteinsson, Ásbjörg Ósk Snorradóttir, Elías Ólafsson og Ástríður
Pálsdóttir.
 
15:25-15:40  Eru utangenaerfðir að verki í arfgengri heilablæðingu? Ástríður
Pálsdóttir, Birkir Þór Bragason, Gustav Östner, Björn Þór Aðalsteinsson,
Ásbjörg Ósk Snorradottir og Elías Ólafsson.
 
15:40-15:55  Taugasækni mæði-visnuveirunnar. Eydís Þórunn Guðmundsdóttir og
Valgerður Andrésdóttir.
 
15:55-16:10  Lentiveiruhindrar. Harpa Lind Björnsdóttir og Valgerður
Andrésdóttir.
 
16:10-16:25  Virkni og þróun APOBEC3 próteina.  Stefán Ragnar Jónsson,
Rebecca S. LaRue, Valgerður Andrésdóttir og Reuben S. Harris.
 
16:25-16:40  Tjáning miRNA á mismunandi þroskastigum lifrar. Dong Liu, Jing
Fan, Wanjiang Zeng, Yiwu Zhou, Sigurður Ingvarsson og Huiping Chen.
 
16:40-17:30  Léttar veitingar
 
 
 
Veggspjöld
 

Vessabundin viðbrögð við fyrstu stigum bakteríusýkingar í þorski. Bergljót
Magnadóttir, Sigríður Steinunn Auðunsdóttir, Berglind Gísladóttir, Birkir
Þór Bragason og Sigríður Guðmundsdóttir.

 

Icelandic Agricultural Sciences. Bjarni E. Guðleifsson, Bjarni Diðrik
Sigurðsson og Sigurður Ingvarsson.

 
MvP1 peptíðasi fisksýkilsins Moritella viscosa er vibriolysin og sýkiþáttur.
Bryndís Björnsdóttir, Ólafur H. Friðjónsson og Bjarnheiður K.
Guðmundsdóttir.

 

Drug library screening - Targeting cystatin C dimerization, amyloid
formation and cerebral hemorrhage.

Gustav Ostner, Veronica Lindstrom, Ossur I Emilsson, Anders Grubb.

 

Breytingar á hjúppróteini mæði-visnuveiru við náttúrulegar sýkingar.
Hallgrímur Arnarson, Margrét Guðnadóttir og Valgerður Andrésdóttir.

 

Breytileiki stofna gammaherpesveira í hestum á Íslandi. Lilja
Þorsteinsdóttir, Einar G. Torfason, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir og Vilhjálmur
Svansson.

 

Lýs og mítlar á íslenskum nautgripum. Matthías Eydal og Sigurður H. Richter.

 

 

 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100426/d353addb/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100426/d353addb/attachment-0001.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list