[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Valerie Helene Maier. Örverudrepandi peptíðin cathelicidin í fiskum.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Oct 13 11:27:46 GMT 2009
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.
Fyrirlesari: Valerie Helene Maier, lífefnafræðingur.
Heiti erindis: Örverudrepandi peptíðin cathelicidin í fiskum.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 15. október, kl. 12:20 á Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Mikilvægi överudrepandi peptíða í náttúrulega ónæmiskerfi spendýra hefur
verið staðfest. Peptíðin hylja yfirborðsþekju þeirra og mynda fyrsta
varnarlagið gegn sýklum. Í fiskum er hins vegar lítið vitað um þessar
grunnvarnir gegn bakteríum en viðtekið er að fiskar treysti á náttúrulegar
varnir, frekar en aðlögunar ónæmi gegn bakteríum. Við höfum nýlega fundið
cathelicidin í nokkrum tegundum fiska og rannsakað tjáningu þeirra við
sýkingu. Tjáning þorska cathelicidin hefur verið skoðuð í lirfum og virka
peptíðið var einangrað úr nýrum.
Frekari rannsóknir á fiska cathelicidin snúa að hlutverki peptíðsins og
stjórnun tjáningar þess.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20091013/08129b75/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20091013/08129b75/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list