[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Hólmfríður Sveinsdóttir. Próteinmengjagreiningar á þorsklirfum.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Nov 23 11:24:32 GMT 2009



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.

 

Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá Matís.

Heiti erindis: Próteinmengjagreiningar á þorsklirfum.

Erindið verður haldið fimmtudaginn 26. nóvember 2009, kl. 12:20 á
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. 

  

Hólmfríður varði doktorsritgerð sína við Háskóla Íslands í maí 2009. Í
fyrirlestrinum verða kynntar  niðurstöður doktorsverkefnisins sem ætlað var
að skapa nýja þekkingu á próteintjáningu í þorsklirfum. Fylgst var með
breytingum á próteinmengi þorsklirfa með auknum þroska og sem viðbrögð við
meðhöndlun þeirra með próteinmeltu og bætibakteríum. Prótein, sem sýndu
magnbreytingar eftir meðhöndlun þorsklirfa með próteinmeltu og
bætibakteríum, voru aðgreind á tvívíðum SDS-PAGE rafdráttargeljum og
kennigreind með massagreiningum. Áhersla var lögð á greiningu próteina sem
tengja má við vöxt, þroska, meltingu og ósérhæft ónæmissvar. Niðurstöður
rannsóknanna sem ritgerðin byggir á, eru fyrsta skrefið í uppbyggingu á
gagnabanka fyrir próteinmengi þorsklirfa.

 

________________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Símar 585 5100 og 896 5811

Tölvupóstfang   <mailto:shr at hi.is> shr at hi.is

 

 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20091123/7ca2d375/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20091123/7ca2d375/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list