[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Sigurður Ingvarsson. Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði 2009: Litningaendar og telómerasi.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Nov 16 11:20:11 GMT 2009
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.
Sigurður Ingvarsson forstöðumaður
Heiti erindis: Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði 2009: Litningaendar og
telómerasi.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember 2009, kl. 12:20 á
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði 2009 skiptust jafnt á milli Elizabeth
H. Blackburn (University of California, San Francisco), Carol W. Greider
(John Hopkins University School of Medicine, Baltimore) og Jack W. Szostak
(Harvard Medical School Boston; Howard Hughes Medical Institute). Verðlaunin
voru veitt fyrir uppgötvun á byggingu og starfsemi litningaenda og ensímsins
telómerasa. Fyrstu niðurstöður byggðu á notkun einfrumungs í rannsóknunum og
síðar kom í ljós að viðkomandi kerfi eru varðveitt í þróun fjölfrumunga.
Niðurstöður verðlaunahafanna leystu m.a. tvö vandamál líffræðinnar sem
tengjast því að litningar eru línulegar sameindir, þ.e. hvernig litningar
eru varðir fyrir niðurbroti og hvernig eftirmyndun á litningaendum á sér
stað. Endurtekning á DNA-röð litningaenda er lykilatriði í starfi þeirra.
Ensímið telómerasi er sérstakt að því leyti að það inniheldur bæði RNA
sameind og próteinsameindir. Virkni þess flokkast sem víxlritavirkni, því
notað er RNA mót til að byggja nýtt DNA. Í erindinu verður farið yfir helsu
tímamótaskref í rannsóknunum, fjallað verður almennt um byggingu og starf
litningaenda og telómerasa og mikilvægi þessarar nýju þekkingar varðandi
skilning og meðferð á sjúkdómum.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20091116/75bf0657/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20091116/75bf0657/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list