[Gerlanet] FEMS ráðstefnan 2009- styrkir

Þórunn Þorsteinsdóttir thoruth at hi.is
Wed Jan 21 13:04:02 GMT 2009


Kæru félagar í Örverufræðifélagi Íslands

Í ár eru það norrænu örverufræðifélögin sem standa að þriðju FEMS ráðstefnunni
og verður hún haldin í Gautaborg 28. júní til 2. júlí 2009. Nánari upplýsingar
má sjá á heimasíðu ráðstefnunnar
http://www2.kenes.com/fems-microbiology/Pages/home.aspx .
Við hvetjum félaga í örverufræðifélagi Íslands til að fara á ráðstefnuna og
kynna þar sínar rannsóknir. Frestur til að skila inn ágripum rennur út 2.
febrúar. FEMS veitir styrki til ungra vísindamanna (sjá
http://www2.kenes.com/fems-microbiology/Pages/Young_Scientists_Grants.aspx )
en að auki ætlar Örverufræðifélag Íslands að veita 2 styrki að upphæð 50
þúsund kr hvorn til einstaklinga í félaginu sem hafa fengið ágrip sitt
samþykkt til birtingar, hvort heldur sem er sem veggspjald eða erindi.
Styrkumsóknir skal senda á netfangið thoruth at hi.is fyrir 2. febrúar og skal
þar koma fram nafn umsækjanda og staða og ágripið. Tilkynnt verður hverjir
fengu styrkinn svo fljótt sem auðið er.

Með kveðju
Stórn ÖRFÍ





More information about the Gerlanet mailing list