[Gerlanet] Fræðslufundur ÖRFÍ þriðjudaginn 21. apríl 20 09
Þórunn Þorsteinsdóttir
thoruth at hi.is
Fri Apr 17 16:56:16 GMT 2009
Ingibjörg Hilmarsdóttir mun halda erindið "Fjendur í fitjum" í Hringsal
Barnaspítala Hringsins þriðjudaginn 21. apríl kl 16:00
"Fjendur í fitjum eru sveppir og bakteríur sem leita skjóls í hlýjunni í
táfitjum vorum, rétt eins og hústökufólk sem finnur hentugt húsnæði til
yfirtöku. Þessum óboðnu gestum fylgja vandræði margskonar. Rétt eins og
hústökufólki fylgir eldhætta þá kveikja fjendur í fitjum sinn eiginn eld
sem stöku sinnum verður að stórbáli. Greint verður frá íslenskum
rannsóknum á útbreiðslu, algengi og fylgikvillum óvina vorra. Að erindinu
loknu ættu áheyrendur að vera betur í stakk búnir til að verjast og bera
kennsl á "hústökufólk" af þessu tagi, sem læðist gjarnan inn á
lymskufullan hátt".
Með kveðju,
Stjórn ÖRFÍ
More information about the Gerlanet
mailing list