[Gerlanet] Örverufræðifélag Íslands 20 ára
Þórunn Þorsteinsdóttir
thoruth at hi.is
Mon May 26 13:12:11 GMT 2008
Örverufræðifélag Íslands fagnar nú 20 ára afmæli sínu og af því tilefni verðu
hið árlega vorþing með öllu stærra sniði þetta árið.
Á morgun, þriðjudaginn 27. maí 2008 kl 13:00-16:30 verður haldin ráðstefna á
Háskólatorgi í sal HT101 undir yfirskriftinni "Örverufræðirannsóknir á
Íslandi". Haldin verða yfirlitserindi yfir örverufræðirannsóknir á Íslandi
síðustu áratugina þar sem farið verður vítt og breytt yfir svið
örverufræðinnar.
Dagskrá:
13:00-13:05 Setning - Viggó Marteinsson formaður ÖRFÍ
13:05-13:50 Umhverfisfræði Jakob Kristinsson
13:50-14:35 Matvælaörverufræði - Hélène L. Lauzon, Franklín Georgsson og
Hannes Magnússon
14.35-15:00 Kaffi - veggspjaldasýning
15:00-15:45 Mannaörverufræði Karl G. Kristinsson
15:45-16:30 Dýraörverufræði Eggert Gunnarsson
16:30- Móttaka á Háskólatorgi
Fyrir utan ráðstefnusalinn verður svo veggspjaldasýning sem fundargestir geta
skoðað í kaffihléi og í móttöku eftir ráðstefnuna.
Þeir sem ætla að sýna veggspjöld eru minntir á að mæta tímanlega til að hengja
þau upp.
Allir velkomnir og vonumst til að sjá sem flesta.
Með kveðju
Stjórn ÖRFÍ
More information about the Gerlanet
mailing list