[Gerlanet] Fræðslufundur ÖRFÍ 24. janúar 2007
Þórunn Þorsteinsdóttir
thoruth at hi.is
Wed Jan 24 08:29:20 GMT 2007
Í dag, miðvikudaginn 24. janúar 2007, verður haldinn fræðslufundur á vegum
Örverufræðifélags Íslands í Hringsal Barnaspítala Hringsins kl 17:00.
Erindið flytur Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir, og nefnist það
"Notkun sýklalyfja og beratíðni penicillín ónæmra pneumókokka hjá börnum
-Endurteknar þversniðsrannsóknir á 10 ára tímabili-"
Rannsóknir á um 2600 börnum voru gerðar í 3 áföngum á árunum 1993, 1998 og
2003. Tilgangur rannsóknanna var að athuga notkun sýklalyfja meðal
forskólabarna á Íslandi og meta hugsanlegt samband slíkrar notkunar við
beratíðni penicillín ónæmra pneumókokka í nefkoki þeirra.
Niðurstöður sýndu að sterkt samband var á milli fyrri sýklalyfjanokunar
barns sem var oftast vegna miðeyrnabólgu og áhættu á að bera
penicillín-ónæmann pneumókokk í nefkoki fyrstu vikurnar á eftir lyfjagjöf,
en pneumókokkar eru einmitt algengustu valdar eyrnabólgu barna.
Með kveðju,
Stjórn ÖRFÍ
More information about the Gerlanet
mailing list