[Gerlanet] Vorþing ÖRFÍ 20. mars 2007
Þórunn Þorsteinsdóttir
thoruth at hi.is
Wed Feb 7 12:58:04 GMT 2007
Árlegt VORÞING Örverufræðifélags Íslands verður haldið fimmtudaginn 20.
mars 2007. Að venju verður Vorþingið haldið í boði Gróco ehf. í
húsakynnum þeirra, Þverholti 14, 105 Reykjavík.
Þingið stendur yfir frá kl. 20:00 til 22:00 og mun Gróco ehf. bjóða upp á
veitingar.
Félagsmenn sem ætla að kynna veggspjöld eru vinsamlegast beðnir um að
senda upplýsingar um titil, höfund(a) og nafn stofnunar (stofnanna) og
útdrátt til ritstjóra fréttabréfsins (thoruth at hi.is) fyrir 12. mars n.k..
Óskað er eftir sem flestum veggspjöldum og útdráttum, svo hægt sé að fá
greinagóða mynd af þeim örverurannsóknum sem eru stundaðar hér á landi.
Í upphaf þings gefst félagsmönnum tækifæri til að kynna veggspjöld sín í
mjög fáum orðum. Gert er ráð fyrir að einn höfundur kynni veggspjald,
kynni sig, stofnun sína, titil veggspjalds og innihald þess í nokkrum
setningum (hámark 5 mín.). Félagsmenn geta í lok kynninga fengið frekari
upplýsingar um efni veggspjalda með höfundum.
Með kveðju
Stjórn ÖRFÍ
More information about the Gerlanet
mailing list