[Gerlanet] Tilraunastöðin að Keldum. Sigurgeir Ólafsson. Plöntuheilbrigði

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Thu Feb 1 08:44:45 GMT 2007


 

Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

Í dag, fimmtudaginn 1. febrúar !

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar H.Í. í meinafræði að Keldum

Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur á Landbúnaðarstofnun.
Heiti erindis: Plöntuheilbrigði. 
Erindið verður haldið fimmtudaginn 1. febrúar kl. 12:20-13:00 á Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. 

Í erindinu verður fjallað almennt um fagsviðið plöntuheilbrigði, sögu þess
hér á landi og orsakir plöntusjúkdóma. Rætt verður um innlenda löggjöf,
samninga og samvinnu á alþjóðavettvangi og skuldbindingar Íslands. Einnig
verður fjallað um verkaskiptingu milli stofnana hér á landi á þessu sviði.

________________________________________________________________

Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang  shr at hi.is

-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: winmail.dat
Type: application/ms-tnef
Size: 145237 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20070201/b9c74758/winmail-0001.bin


More information about the Gerlanet mailing list