[Gerlanet] Aðalfundur og fræðsluerindi.

Snorri Páll spd at hi.is
Mon May 8 14:08:31 GMT 2006


AÐALFUNDUR

Aðalfundur Örverufræðifélags Íslands verður haldinn 9. maí næstkomandi kl.
20.00 í fundarsal Sjávarútvegshússins að Skúlagötu 4

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
* Skýrsla stjórnar.
* Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.

* Ákvörðun félagsgjalda
* Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
* Önnur mál.

FRÆÐSLUERINDI

Að loknum aðalfundarstörfum, um kl. 20.30 mun 

Guðmundur Eggertsson 

flytja erindi sem hann nefnir 

Uppruni Baktería 

Mikil óvissa ríkir um við hvers konar aðstæður líf hafi fyrst kviknað á
jörðinni og hver fyrstu skrefin í átt til lífs hafi verið. Í fyrirlestrinum
verður sagt frá tveimur tilgátum um uppruna lífs við heita hveri á
sjávarbotni. Einnig verða raktar ólíkar hugmyndum um aðdraganda þess að DNA
kom í stað RNA sem erfðaefni og sagt frá mismunandi tilgátum um uppruna
baktería.

 

Að erindinu loknu verður boðið upp á léttar veitingar.

 

Allir eru velkomnir

 

f.h. stjórnar ÖRFÍ

Snorri Páll Davíðsson, ritstjóri fréttabréfs.

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20060508/c6091b72/attachment.html


More information about the Gerlanet mailing list