[Gerlanet] Vorþing Örverufræðifélags Íslands

Snorri Páll spd at hi.is
Thu Mar 9 09:14:35 GMT 2006


Örverufræðifélag Íslands

Vorþing

 

Hinn árlegi veggspjaldafundur Örverufræðifélags Íslands verður haldinn 30.
mars næstkomandi

Að þessu sinni verður fundurinn haldinn í nýju húsnæði Groco í Þverholti 14,
2. hæð milli klukkan 20 og 22.

Fundurinn verður með hefðbundnu sniði og er reiknað með að hver og einn fái
5 mínútur til að kynna sitt veggspjald

Að loknum kynningum verða léttar veitingar í boði Groco.

 

Félagar eru eindregið hvattir til að koma með hverskonar kynningarefni sem
þeir hafa útbúið og kynna það á þessum fundi.

Ágrip skulu sendast á þetta netfang fyrir 24. mars og munu þau birtast í
fréttabréfi Örverufræðifélagsins sem kemur út 30. mars. 

Við viljum minna á að þáttaka á veggspjaldafundi telst til birtinga.

 

Allir eru velkomnir

 

Fyrir hönd stjórnar Örverufræðifélags Íslands,

Snorri Páll, ritstjóri fréttabréfs

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20060309/04338aa8/attachment.html


More information about the Gerlanet mailing list