[Gerlanet] Fræðsluerindi: Fuglaflensa
Snorri Páll
spd at hi.is
Mon Mar 6 11:54:50 GMT 2006
Örverufræðifélag Íslands
FRÆÐSLUERINDI
7. mars klukkan 16.15
í Hringssal Barnaspítala Hringsins
Gengið er inn Hringbrautarmegin um aðalinngang barnaspítalans.
Jarle Reiersen,
dýralæknir alifuglasjúkdóma
Fuglaflensa
Fuglainflúensa greinist nú í mörgum löndum í Vestur-Evrópu, Afríku og
SA-Asíu. Fjölmiðlar fræða okkur um þróun mála frá degi til dags. Í erindinu
verða rifjuð upp nokkur grundvallaratriði inflúensuveirunnar og fjallað um
hvernig útbreiðsla fuglaflensunnar hefur þróast síðustu árin. Einnig verður
fjallað um hvort þetta er vá sem hægt er að varast og hvernig hugsanlega
megi verjast henni. Lögð verður áhersla á fuglaflensuna sem dýrasjúkdóm.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir
Fyrir hönd stjórnar Örverufræðifélags Íslands,
Snorri Páll, ritstjóri fréttabréfs
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20060306/d6b79d63/attachment.html
More information about the Gerlanet
mailing list