[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Matthías Eydal. Naglús á hrossum.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Sep 12 09:50:46 GMT 2005
Til tengiliða!
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög, hópa
o.fl. til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
_______________________________________________________________
Fræðsluerindi á vegum Keldna
Fyrirlesari: Matthías Eydal líffræðingur
Heiti erindis: Naglús á hrossum: Dreifing lúsa og einkenni sýkinga.
Erindið verður haldinn í bókasafni Tilraunastöðvarinnar að Keldum,
fimmtudaginn 15. september, kl. 12:20 -13:00.
Fáar heimildir eru til um athuganir á líffræði hrossalúsa og dreifingu
þeirra á hýsli sínum. Markmið rannsóknarinnar var að afla vitneskju um
dreifingu lúsa á íslenskum hrossum og tengsl við þau einkenni sem almennt
eru talin fylgifiskur lúsasýkinga.
Kembd voru með staðlaðri aðferð sjö fyrirfram ákveðin svæði á 93 hrossum í
15 hesthúsum, þar sem grunur lék á lúsasmiti. Dæmigerð einkenni fyrir
lúsasýkingar (hárlausir blettir eftir nudd og önnur húðeinkenni) voru
skráð. Lýs voru taldar í sýnum af hverju svæði að lokinni kembingu.
Í erindinu verður fjallað um naglýsnar og líffræði þeirra og greint frá
niðurstöðum rannsóknarinnar. Greint er frá því hve mörg hross reyndust hafa
lýs, hver var lúsafjöldi og á hvaða svæðum var mest af lúsum. Einnig hve
hátt hlutfall hrossa sýndu einkenni og hvort samhengi var á milli einkenna
og fjölda lúsa.
________________________________________________________________
Bestu kveðjur,
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811. Tölvupóstfang shr at hi.is
More information about the Gerlanet
mailing list