Ég hef verið beðin um að koma eftirfarandi auglýsingu á framfæri.
Kveðja Vala.
Hreinlæti í mjólkuriðnaði
Þann 9. september verður haldinn fundur á Grand Hotel Reykjavik
um hreinlæti í mjólkuriðnaði.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins skipuleggur þennan fund í samvinnu við VTT
Biotechnology í Finnlandi. Fundurinn er styrktur af Nordic Innovation
Centre, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði og Framleiðnisjóð
landbúnaðarins.
Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður norræna verkefnisins DairyNet
sem hefur verið í gangi undanfarin 3 1/2 ár. Í því voru skoðaðir ýmsir
þættir varðandi hreinlæti í norrænum mjólkuriðnaði. Fimm erlendir
fyrirlesarar munu koma til landins og kynna niðurstöður sínar og einnig
verða fjórir íslenskir fyrirlesarar sem munu kynna íslenska hluta
verkefnisins. Íslenskir fyrirlesarar halda sín erindi á íslensku en erlendu
fyrirlesararnir verða með sín erindi á ensku.
Þátttökugjald er 5000 kr og innifalið í því er fundarefni, kaffi og
hádegisverður.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst til Sigrúnar Guðmundsdóttir
e-mail sigrun at rf.is eða Birnu Guðbjörnsdóttur e-mail birna at rf.is eða í
gegnum fax 530-8601
Dagskrá fundarins:
8.30 Skráning
9.15 Setning fundarins, Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Rf
9.30 Áhrif sótthreinsiefna á bakteríustofna einangraða í
mjólkuriðnaði, Jóhann Örlygsson, Háskólanum á Akureyri
10.15 Mengunarleiðir Listeria monocytogenes í mjólkuriðnaði, Sigrún
Guðmundsdóttir, Rf
11.00 Kaffi hlé
11.30 Mat á ávinningi iðnaðarins af DairyNet verkefninu, Ólafur Jónsson,
Norðurmjólk/Bústólpi
12.15 The Nordic DairyNet-project, Gun Wirtanen, VTT Biotechnology,
Finnland
12.45 Hádegisverðarhlé
13.45 Raw milk hygiene, Jens Petter Homleid, TINE, Norway
14.15 Microbial contamination routes and hygiene check-ups in cheese
plants. Harriet Alnås, Arla Foods Innovations, Svíþjóð
14.45 Residue testing cleaning agents and disinfectants on process
surfaces using photobacteria, Satu Salo, VTT Biotechnology,
Finnland
15.15 Kaffihlé
15.45 Hygienic system integration, Lotte Dock Steenstrup,
BioCentrum-DTU, Danmörk
16.15 Notkun á timbri við matvælaframleiðslu m.t.t. hreinlætis, Birna
Guðbjörnsdóttir, Rf
16.45-17.00 Samantekt, Gun Wirtanen, VTT Biotechnology
***************************************************************************
Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700, +(354) 8960844
fax: + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is
***************************************************************************