[Gerlanet] Fræðslufundur Keldum: Herborg Hauksdóttir - Retinsýruviðtakar: áhrif bindingar við DNA og meðbæli (corepressor) við stjórnun umritunar .

Vala Friðriksdóttir valaf at hi.is
Thu Oct 14 14:42:34 BST 2004


Fræðslufundur Keldum:
Retinsýruviðtakar:  áhrif bindingar við DNA og meðbæli (corepressor) á
stjórnun umritunar

Fyrirlesari:
Herborg Hauksdóttir, líffræðingur Keldum.

Stund:
Fimmtudagur 21.október 2004, kl.12:20

Staður:
Bókasafn Keldna


Ágrip:

Retinsýruviðtakar eru umritunarþættir sem hafa víðtæk áhrif á
fósturþroskun, frumuþroskun og frumusérhæfingu í hryggdýrum. Stökkbreyttir
viðtakar geta stuðlað að hvítblæði og kynntar verða rannsóknir sem sýna að
stökkbreyttu viðtakarnir hafa aðra DNA-bindieiginleika en eðlilegir
viðtakar. Einnig verður sagt frá rannsóknum sem sýna að hinar þrjár
undirgerðir retinsýruviðtaka bindast meðbælipróteini missterkt og leiðir
það til ólíkrar stjórnunar á umritun gena.


Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna.  Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).

Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.

Fólk er beðið um að mæta tímanlega.

Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is


Allir velkomnir.

Kveðja.
Fræðslustjóri.



***************************************************************************

Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax:  + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is

***************************************************************************





More information about the Gerlanet mailing list