[Gerlanet] Fræðslufundur Keldum: Árni Kristmundsson - "Sníkjudýr (Coccidia) í hörpuskel, Chlamys islandica, við Ísland."

Vala Friðriksdóttir valaf at hi.is
Mon Nov 29 08:55:37 GMT 2004


Fræðslufundur Keldum
Nafn fyrirlesara: Árni Kristmundsson, líffræðingur Keldum.
Titill erindis: Sníkjudýr (Coccidia) í hörpuskel, Chlamys islandica, við
Ísland.

Stund og staður: Fimmtudagur 2. desember, kl. 12:20 í bókasafni Keldna.

Ágrip: Síðustu 3 ár hefur orðið hrun á stofni hörpudisks, Chlamys islandica
, við Ísland og er stofninn nú einungis um 35% af meðaltalsvísitölu áranna
1996-2000. Vegna þessa hafa veiðar á tegundinni verið bannaðar síðastliðin
tvö ár. Hækkandi sjávarhiti hefur verið nefndur sem ein hugsanlegra
skýringa. Á Keldum hafa undanfarin misseri farið fram umfangsmiklar
rannsóknir á skelinni til að kanna hugsanlegan þátt sjúkdóma í afföllunum.
Verulegar frumdýrasýkingar hafa greinst og verður fjallað um þær í
fyrirlestrinum.

Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna.  Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).

Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.

Fólk er beðið um að mæta tímanlega.

Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is


Allir velkomnir.

Kveðja.
Fræðslustjóri.



***************************************************************************

Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax:  + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is

***************************************************************************





More information about the Gerlanet mailing list