[Gerlanet] Minnt á fræðslufundu Keldna fimmtudag 4. nóvember: Helga Árnadóttir - Óvirkjun á AsaP1 úteitri fisksýkilsins Aeromonas salmonicida undirteg. achromogenes og áhrif breytinganna á sýkingarmátt bakteríunnar

Vala Friðriksdóttir valaf at hi.is
Mon Nov 1 13:54:01 GMT 2004



Fræðslufundur Keldum: "Óvirkjun á AsaP1 úteitri fisksýkilsins Aeromonas
salmonicida undirteg. achromogenes og áhrif breytinganna á sýkingarmátt
bakteríunnar"


Fyrirlesari:
Helga Árnadóttir, líffræðingur Keldum.

Stund:
Fimmtudagur 4. nóvember 2004, kl. 12:20.

Staður:
Bókasafn Keldna.

Ágrip:
Aeromonas salmonicida undirteg. achromogenes (Asa) er Gram neikvæð baktería
sem veldur kýlaveikibróður í laxfiskum og öðrum fisktegundum. Málmháði
aspzincin peptíðasinn AsaP1, er úteitur margra atýpískra A. salmonicida
stofna og þar á meðal týpustofns undirtegundar achromogenes.  AsaP1 er
úteitur sem uppfyllir lögmál Kochs og getur eitt og sér valdið einkennum
kýlaveikibróður.
Tilgangur rannsóknarinnar var að óvirkja gen AsaP1 peptíðasans og athuga
hvaða áhrif það hefði á sýkingarmátt bakteríunnar.
AsaP1 genið var óvirkjað með því að melta virkniset peptíðasans úr geninu
og í staðinn komið fyrir geni sem veitir þol gegn kanamycini.  Til að kanna
sýkingarmátt bakteríunnar voru laxaseiði baðsmituð eða sýkt með sprautun í
kviðarhol. Fylgst var með dauða fiskanna í mánuð og sýni tekin í
bakteríuræktun og til vefjameinafræðiskoðunar.
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að AsaP1 úteitur Aeromonas
salmonicida undirteg. achromogenes er ekki nauðsynlegt til að bakterían
sýki lax.


Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna.  Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).

Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.

Fólk er beðið um að mæta tímanlega.

Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is


Allir velkomnir.

Kveðja.
Fræðslustjóri.



***************************************************************************

Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax:  + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is

***************************************************************************



_______________________________________________
Gerlanet mailing list
Gerlanet at rhi.hi.is
http://ve.rhi.hi.is/mailman/listinfo/gerlanet







More information about the Gerlanet mailing list