[Gerlanet] Doktorsvörn í líffræði (örverufræði) í dag kl. 13
Viggó Þór Marteinsson
viggo.marteinsson at prokaria.com
Mon Dec 20 09:43:36 GMT 2004
Doktorsvörn í líffræði frá raunvísindadeild Háskóla Íslands
Aðgengi að fjölbreytileika hitakærra örvera og gena þeirra með sérstökum
auðgunaraðferðum
Mánudaginn 20. desember fer fram doktorsvörn við raunvísindadeild Háskóla
Íslands. Þá ver Cédric F.V. Hobel MSc. Biotech doktorsritgerð sína ?Access
to Biodiversity and New Genes from Thermophiles by Special Enrichment
Methods? (Aðgengi að fjölbreytileika hitakærra örvera og gena þeirra með
sérstökum auðgunaraðferðum). Andmælendur verða Dr. Joel J. Querellou
forstöðumaður hjá IFREMER Brest og Dr. Guðni Á Alfreðsson prófessor við
Háskóla Íslands. Athöfnin hefst kl. 13:00 í Hátíðasal Háskóla Íslands,
Aðalbyggingu og er öllum opin. Dr. Hörður Filippusson forseti
raunvísindadeildar stjórnar athöfninni.
Leiðbeinendur við doktorsverkefnið eru Dr. Jakob K. Kristjánsson forstjóri
Prokaria og Dr. Viggó Þór Marteinsson, Prokaria. Í doktorsnefnd situr
ásamt leiðbeinendum Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson dósent við HÍ.
Verkefnið var unnið á rannsóknastofu Prokaria.
Almennt er talið að einungis sé hægt að rækta og einangra minna en 1% af
öllum örverum sem eru til staðar í náttúrunni. Til að nálgast þau 99% sem
eftir eru verður að nota sameindalíffræðilegar aðferðir og auka
fjölbreytni í sýnatöku en doktorsverkefnið fjallar meðal annars um þetta.
Verkefninu má skipta í þrjá hluta. Í fyrsta hluta er fjallað um
örverufjölbreytileika í tveimur heitum jaðarvistkerfum (Extreme
environments). Erfðagreiningar voru gerðar á sýnum úr jarðhitaborholum og
á sýnum sem voru tekin við neðansjávarhveri á 400 m dýpi við Grímsey. Í
báðum tilvikum sýndu niðurstöður fram á mikinn örverufjölbreytileika og
tilvist nýrra hitakærra örvera. Í öðrum hluta verkefnisins voru nýjar
ræktunaraðferðir notaðar til að auðga fyrir örverum með sértæka
eiginleika. Auðgað var fyrir örverum sem brjóta niður sterkju í
brennisteinsríkum hver. Með því að skima ræktirnar með sértækum
kjarnsýruþreifurum tókst að einangra kjarnsýruraðir 18 nýrra
sterkjuensím-gena en aðeins eitt þerra kom fram í örveruþekjum sem mynda
megin lífmassa hversins. Blönduð aðferðafræði var notuð til að skoða
fjölbreytileika kítínasagena í örverum sem lifa í strandhverum þar sem
sjávarfalla gætir við Reykjanes í Ísafjarðardjúpi. Unnt var að einangra 36
ný kítínasagen úr auðgunum og örveruþekjum. Niðurstöðurnar sýndu fram á að
hægt sé að veiða út ný og verðmæt gen úr náttúrunni með markvissum
auðgunum sem byggja á samþættingu in vitro og in situ aðferða. Í
lokahluta verkefnisins var genamengi hitakæru sjávarbakteríunnar
Rhodothermus marinus skimað fyrir kítínasageni. Genið var síðan einangrað,
klónað og tjáð og genaafurðin hreinsuð. Ensímið reyndist vera
hitastöðugast allra kítínasa sem hafa fundist í raunbakteríum og geta
breytt kítínfjölliðum í tvíliður. Doktorsritgerðin byggir á safni fimm
greina sem hafa verið birtar eða bíða birtingar í alþjóðlegum, ritrýndum
tímaritum á sviði örverufræða eða líftækni. Einnig voru niðurstöðurnar
grundvöllur að einni einkaleyfisumsóknar.
Cédric F.V. Hobel (franskur, f. 1977) lauk stúdentsprófi (Baccalaureat)
frá Lycée Bartholdi í Colmar 1994, próf í lífefnafræði frá University
Louis Pasteur, Strasbourg, 1996 og M.Sc. prófi í líftækni/frumu- og
sameindalíffræði frá European School for Biotechnology of Strasbourg,
1999. Foreldrar Cédrics eru Yvan og Marie-Reine Hobel, sem búa í
Kientzheim, Frakklandi.
********************************
Með góðri kveðju,
Jónína Helga Þórólfsdóttir
Verkefnastjóri
Markaðs- og samskiptadeild
Háskóli Íslands v/Suðurgötu
Sími: 525 4207 / 898 4451
joninath at hi.is
_______________________________________________
Hi-starf mailing list
Hi-starf at hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20041220/b304498f/attachment.html
More information about the Gerlanet
mailing list