[Gerlanet] Minnt á fræðslufund Keldna - Á MORGUN - miðvikudaginn 15. desember: Sigurður Ingvarsson - Nóbelsverðlaunin í efnafræði 2004: Ubiquitin miðlað próteinniðurbrot.

Vala Friðriksdóttir valaf at hi.is
Tue Dec 14 12:01:33 GMT 2004




Fræðslufundur Keldum

Nafn fyrirlesara:
Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður Keldum.

Titill erindis:
Nóbelsverðlaunin í efnafræði 2004: Ubiquitin miðlað próteinniðurbrot.

Stund og staður:
Miðvikudagur 15. desember, kl. 12:20, bókasafni Keldna

Ágrip:
Lýsing á því hvernig niðurbroti próteina í frumum er stjórnað þykir
grundvallaruppgötvun og þrír vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaunin í
efnafræði árið 2004 fyrir rannsóknir sínar á þessu sviði.  Í þessu
stjórnunarferli er nákvæm sértækni varðandi hvarfefni, tíma- og
staðsetningu. Í sameiningu uppgötvuðu þeir Aaron Ciechanover, Avram Hershko

og Irwin Rose ubiquitin-miðlað próteinniðurbrot, ferli þar sem ensímkerfi
tengir fjölmargar sameindir 76-amínsýru próteinsins ubiquitin við prótein
sem fruman þarf að losa sig við. Prótein sem hafa verið merkt á þennan hátt

eru flutt til proteasóma, sem er fjölpróteina flóki og brotin niður þar.
Fjölmörgum ferlum í frumunni er stjórnað með ubiquitin miðluðu
próteinniðurbroti þ.m.t. frumuhringurinn, DNA viðgerðir og umritun,
gæðastjórnun á próteinum og ónæmissvar. Galli í þessu próteinniðurbroti er
orsakavaldur í ýmsum sjúkdómum, m.a. ýmsum krabbameinum.


Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna.  Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).

Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.

Fólk er beðið um að mæta tímanlega.

Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is


Allir velkomnir.

Kveðja.
Fræðslustjóri.



***************************************************************************

Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax:  + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is

***************************************************************************



_______________________________________________
Keldur mailing list
Keldur at hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/keldur





_______________________________________________
Keldur mailing list
Keldur at hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/keldur







More information about the Gerlanet mailing list