[Gerlanet] tilkynning um Vísindadag Keldna 30.apríl
Vala Friðriksdóttir
valaf at hi.is
Tue Apr 27 09:27:30 BST 2004
Komið þið sæl.
Ég kem hér á framfæri auglýsingu frá vísindanefnd vegna Vísindadags Keldna.
Í viðhengi er dagskrá ráðstefnunnar.
Vinsamlegast prentið dagskrána út og hengið upp þar sem við á.
Kveðja
Vala
***************************************************************************
Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax: + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is
***************************************************************************
----- Forwarded by Vala Friðriksdóttir/Keldum on 27.04.2004 08:17 -----
Stefania
Thorgeirsdottir To: valaf at hi.is
<stef at rhi.hi.is> cc:
Subject: tilkynning um Vísindadag
26.04.2004 14:25
Vísindadagur á Keldum 30. apríl 2004
Haldinn verður Vísindadagur á Keldum föstudaginn 30.apríl. Þetta er í annað
sinn sem við höldum ráðstefnu undir þessu heiti, en fyrsti Vísindadagurinn
var haldinn 3.maí 2002. Stendur til að hann verði haldinn annað hvert ár í
framtíðinni.
Um er að ræða eins dags ráðstefnu sem haldin verður í bókasafni
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Kynntar verða
niðurstöður rannsókna sem unnið er að á Keldum, bæði með fyrirlestrum og
veggspjöldum, sjá dagskrá hér fyrir neðan. Fyrirlesarar verða starfsmenn á
Keldum, bæði frá Tilraunastöðinni og Yfirdýralæknisembættinu, auk
gestafyrirlesara utan stofnunarinnar. Dagskrá ráðstefnunnar og útdrættir
erinda og veggspjalda verða gefin út í sérstöku hefti, en auk þess kemur
Ársskýrsla Keldna fyrir árið 2003 út sama dag.
Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin.
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar, fyrirlestra og veggspjöld eru
í viðhengi og á heimasíðu Keldna (http://www.keldur.hi.is/).
Með kveðju frá Vísindanefnd.
Dagskrá Vísindadags á Keldum 30. apríl 2004
8:00 Húsið opnað
8:30-8:45 Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. Ráðstefna sett
8:45-9:15 Y-1 Ástríður Pálsdóttir: Riða, príon sjúkdómar og smitandi
prótein
9:15-9:30 E-1 Snorri Páll Davíðsson: Mýlildi
9:30-9:45 E-2 Guðmundur Georgsson: Leit að heilbrigðum smitberum í tveimur
riðuhjörðum
9:45-10:00 E-3 Birkir Þór Bragason: Athugun á áhrifum R151C arfgerðar á
meðhöndlun PrPCARQ-EGFP klóns í frumum
10:00-10:30 Kaffi og veggspjaldasýning I. Veggspjöld nr. 1,2,3,4 og 5
10:30-11:00 Y-2 Sigríður Björnsdóttir: Minjar um uppruna íslenska hestsins
- mein í beinum landnámshesta
11:00-11:15 E-4 Vilhjálmur Svansson: Hitasótt í hrossum
11:15-11:30 E-5 Matthías Eydal: Lyf gegn hrossalús
11:30-11:45 E-6 Guðbjörg Ólafsdóttir: Þróun á tjáningarferjum fyrir DNA
bólusetningu hesta
11:45-12:00 E-7 Hallgrímur Arnarson: Mat á aðferðum við DNA-bólusetningu
gegn lentiveirusýkingu í kindum
12:00-13:00 Matur og veggspjaldasýning II. Veggspjöld nr.
6,7,8,9,10,11,12 og 13
13:00-13:30 Y-3 Ólafur Andrésson: Keldur og nýju aðferðir
sameindalíffræðinnar
13:30-13:45 E-8 Stefán Ragnar Jónsson: Hlutverk Vif í sýkingarferli
mæði-visnuveiru
13:45-14:00 E-9 Sigríður Rut Franzdóttir: Stökkbreytigreining Vif próteins
mæði-visnuveiru
14:00-14:15 E-10 Hulda S. Hreggviðsdóttir: Taugasækni mæði-visnuveirunnar
14:15-14:30 E-11 Guðmundur Pétursson Slímhúðarbólusetning með veikluðum
visnuveirustofni
14:30-15:00 Kaffi og veggspjaldasýning III. Veggspjöld nr.
14,15,16,17,18,19 og 20
15:00-15:15 E-12 Karl Skírnisson: Nýjar rannsóknir á fuglablóðögðum og
sundmannakláða á Íslandi
15:15-15:30 E-13 Sigurbjörg Þorsteinsdóttir: Sumarexem í fólki
15:30-15:45 E-14 Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir: Tilraunir til að bólusetja
þorsk gegn bakteríusjúkdómum
15:45-16:00 E-15 Sigríður Guðmundsdóttir: Áhrif bætibaktería og ónæmisörva
á afkomu þorsklirfa
16:00-16:15 E-16 Vala Friðriksdóttir: Campylobacter í kjúklingum - getur
hænan smitað eggið/ungann?
16:15-16:30 E-17 Jarle Reiersen: Campylobacter-faraldur í mönnum á Íslandi
1998-2000 og varanleg áhrif aðgerða
16:30-16:35 Sigurður Ingvarsson. Ráðstefnu slitið
16:35-17:30 Léttar veitingar
(See attached file: Erindi og veggspjöld á Vísindadögum 2004.doc)
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: =?iso-8859-1?Q?Erindi_og_veggspj=F6ld_=E1_V=EDsindad=F6gum_2004.doc?=
Type: application/msword
Size: 55296 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20040427/8bc9dc07/iso-8859-1QErindi_og_veggspjF6ld_E1_VEDsindadF6gum_2004-0001.dot
More information about the Gerlanet
mailing list