[Gerlanet] greiðsla árgjalds
Bjarnheidur Gudmundsdottir
bjarngud@hi.is
Thu, 17 Jul 2003 10:59:25 +0000
Kæru félagar í Örverufræðifélagi Íslands.
Nú hafa verið sendir út gíróseðlar vegna innheimtu árgjalds félagsins, sem
er 1500 kr. árið 2003 en var áður 1100 kr. Vegna langvarandi veikinda
fráfarandi gjaldkera hafa innheimtuaðgerðir verið nokkuð slakar og því eru
margir rukkaðir um ágjöld fyrir árið 2002 og 2003 núna. Eldri skuldir hafa
verið felldar niður. Ég vil minna á, að það er hægt að greiða í gegnum
heimabanka. Númer tékkareiknings félagsins er: 313-26-2409 og kennitala:
550290-1039. Árgjöldin eru aðaltekjur félagsins og því skiptir öllu máli
fyrir öfluga starfsemi að innheimtan gangi vel.
Með bestu kveðjum
Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir, formaður Örverufræðifélags Íslands